25. ágúst 2025
Fréttir
Startup Landið er nýr, sjö vikna viðskiptahraðall sem ætlaður er frumkvöðlum og nýsköpunarverkefnum í landsbyggðunum. Hraðallinn, sem haldinn er í samstarfi allra landshlutasamtaka utan höfuðborgarsvæðisins, hefst 18. september og stendur til 30. október. Opið er fyrir umsóknir til 31. ágúst og verða valin til þátttöku tvö teymi úr hverjum landshluta.
Startup Landið mun veita þátttakendum aðgang að sérfræðiráðgjöf, tengslaneti og möguleikum á fjármögnun, svo eitthvað sé nefnt. Markmið viðskiptahraðalsins er að styðja við vöxt og þróun nýsköpunarverkefna í landsbyggðunum, hvort sem þau eru unnin af einstaklingum, sprotafyrirtækjum eða innan rótgróinna fyrirtækja.

Hvað býður hraðallinn upp á?
- Aðgang að reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum og fjárfestum
- Vinnustofur og fræðslufundi
- Tækifæri til að byggja upp öflugt tengslanet í öllum landshlutum
- Tvær staðbundnar vinnustofur með þátttöku allra teyma
- Mestu leyti rafrænt fyrirkomulag sem hentar þátttakendum um allt land
Hverjir geta sótt um?
Startup Landið er sniðið að frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum í landsbyggðunum, sem vilja þróa hugmynd sína og/eða verkefni sitt áfram með stuðningi sérfræðinga og tengslanets.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má finna hér.
Startup Landið er samstarfsverkefni landshlutasamtakanna: SSNV, SSNE, Vestfjarðastofu, Austurbrúar, SASS, SSS og SSV.
Fylgist endilega með á fésbókarsíðu Startup Landið