Fara í efni

Skráningar hafnar á Vestnorden 2026

Fréttir

Nú hefur verið opnað fyrir skráningar á Vestnorden 2026 sem fer fram í Nuuk á Grænlandi dagana 22.–23. september 2026.

Vestnorden er leiðandi B2B ferðaþjónustuvettvangur sem sameinar ferðaþjónustuaðila frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Viðburðurinn er einn mikilvægasti árlegi viðburður ferðaþjónustunnar á Norður‑Atlantshafi og vettvangur þar sem kaupendur og seljendur koma saman til að byggja upp verðmæt viðskiptasambönd.

Á Vestnorden gefst einstakt tækifæri til að kanna ný samstarfstækifæri, styrkja núverandi tengsl og eiga beint samtal við lykilaðila í ferðaþjónustu á öllum þremur áfangastöðunum.

Markaðsstofa Vestfjarða hyggst vera á staðnum og taka virkan þátt í Vestnorden 2026 og hvetjum við vestfirska ferðaþjónuaðila eindregið til að skrá sig og nýta þetta tækifæri til að kynna sitt framboð, efla tengslanet sitt og skapa ný viðskiptatækifæri.

Vestnorden 2026 verður haldin í Nuuk á Grænlandi dagana 22.–23. september 2026.

Skráning fer fram hér:
https://vestnorden2026.converve.io/