Fara í efni

Skráning fyrir gesti og sýnendur á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna 2026

Fréttir

Nú er búið að opna fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem verða haldin í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 15. janúar 2026 frá klukkan 12 til 17.

Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem rúmlega þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt að kynnast betur fólki í ferðaþjónustu og fjölmörgum fagaðilum sem koma á Mannamót.

Ísland hefur upp á margt að bjóða, allan ársins hring og á Mannamótum eru sýnendur hvattir til þess að leggja sérstaka áherslu á það sem boðið er upp á yfir vetrartímann. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Isavia.

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Allar markaðsstofurnar munu bjóða sínum samstarfsfyrirtækjum, sem skrá sig á Mannamót, á sérstakan undirbúningsfund þar sem farið verður yfir hvað gott er að hafa í huga fyrir svona sýningu, hvaða kynningarefni hentar best og svo framvegis. Þessir fundir verða auglýstir þegar nær dregur.

Skráningu sýnenda lýkur þann 18. desember 2025. Verð fyrir sýnendur er 34.900+ vsk.

Smelltu á þennan hlekk til að skrá þig sem sýnanda: https://www.markadsstofur.is/skraningsynenda

Smelltu hér fyrir upplýsingasíðu fyrir sýnendur: https://www.markadsstofur.is/is/vidburdir/mannamot/synendur

Skráning gesta

Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Við biðjum þó þá sem ætla að koma sem gestir að skrá sig svo hægt sé að áætla fjöldann.

Smelltu á þennan hlekk til að skrá þig sem gest: https://www.markadsstofur.is/skraninggesta

Smelltu hér fyrir upplýsingasíðu fyrir gesti: https://www.markadsstofur.is/is/vidburdir/mannamot/gestir

Ferðaþjónustuvikan

Dagarnir 13. – 15. janúar 2026 verða helgaðir ferðaþjónustu. Þá verður lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá undir merkjum Ferðaþjónustuvikunnar.

Aðstandendur Ferðaþjónustuvikunnar eru Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.

Smelltu hér til að skoða vefsíðu Ferðaþjónustuvikunnar.

Dagskrá Ferðaþjónustuvikunnar er í vinnslu og verður kynnt síðar.

Skoða á viðburðardagatali