Fara í efni

Samgöngustofa - Sérfræðingur í siglingavernd

Störf í boði

Ertu með sterka verndarvitund?

Siglingasvið Samgöngustofu leitar að öflugum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi framtíðarstarf á sviði siglingaverndar (e. Maritime Security).

Starfið felur í sér tækifæri til að byggja upp sérþekkingu á sviði sem er í mikilli þróun. Við leggjum áherslu á góða þjálfun og starfsþróun og starfið getur því hentað bæði nýútskrifuðum sem og reynslumeiri einstaklingum sem hafa áhuga á að sérhæfa sig á sviði siglingaverndar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Gerð áhættumata fyrir hafnaraðstöður og hafnir.

  • Eftirlit með gerð og viðhaldi verndaráætlana fyrir hafnaraðstöður, hafnir og skip.

  • Útgáfa staðfestinga á áhættumati og verndaráætlunum fyrir hafnaraðstöður, hafnir og skip.

  • Úttektir á framkvæmd siglingaverndar hjá eftirlitsskyldum aðilum þ.e. höfnum, skipum og skipafélögum og eftir atvikum hjá öðrum fyrirtækjum og aðilum sem koma að siglingavernd.

  • Þátttaka í samstarfi með yfirvöldum, stofnunum og viðbragðsaðilum á Íslandi sem hafa hlutverki að gegna vegna siglingaverndar (ríkislögreglustjóra, staðarlögreglu, tollgæslu, Landhelgisgæslu og öðrum).

  • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði siglingaverndar, svo sem hjá IMO, European Commission og EMSA. Tengiliður vegna siglingaverndar við alþjóðastofnanir og Eftirlitsstofnun EFTA.

  • Gerð og viðhald Siglingaverndaráætlunar Íslands

  • Gerð og viðhald áhættumats vegna innanlandssiglinga

  • Þátttaka í gerð kennsluefnis og leiðbeininga til verndarfulltrúa og annarra hagsmunaaðila

 

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði lögreglufræði, lögfræði, öryggis- og áhættustjórnun, opinberri stjórnsýslu eða tengdu námi

  • Þekking á öryggis- og gæðastjórnun og netöryggismálum

  • Reynsla á sviði hlítni/hlítnieftirliti, löggæslu eða tollgæslu æskileg

  • Þekking á íslenskum og alþjóðlegum siglingamálum kostur

  • Mjög góð tölvukunnátta

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni og frumkvæði og áhugi á að byggja upp sérþekkingu á sviðinu

 

Frekari upplýsingar um starfið

Samgöngustofa býður annars upp á

  • Sveigjanlegt vinnufyrirkomulag

  • Góða þjálfun og stuðning við uppbyggingu sérþekkingar

  • Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu umhverfi

  • Góðan starfsanda og öflugt teymi sérfræðinga

Samgöngustofa fer með stjórnsýslu og eftirlit varðandi flug, siglingar, umferð, og öryggiseftirlit með samgöngumannvirkjum og leiðsögu. Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun með öflugum mannauði, skýran samfélagslegan tilgang og framtíðarsýn. Lögð er áhersla á uppbyggingu faglegs starfsumhverfis, góða starfsaðstöðu og sveigjanleika í starfi.

Starfshlutfall er 100%.

Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins við viðkomandi stéttarfélag.

Samgöngustofa er með starfsstöðvar í Reykjavík, Akureyri og Ísafirði og getur sérfræðingur í siglingavernd starfað frá þeirri starfsstöð sem best hentar.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga S. Arnardóttir

Tölvupóstur: inga@hagvangur.is

Sækja um starf