Fara í efni

Samgöngustofa - Sérfræðingur í siglingaöryggi

Störf í boði

Viltu móta framtíð siglingaöryggis?

Siglingasvið Samgöngustofu leitar að öflugum einstaklingi í fjölbreytt og spennandi starf við yfirferð og mat á smíðateikningum og eftirlit með hönnun skipa. Starfið felur í sér þátttöku í alþjóðlegu og innlendu samstarfi um mengunarmál og orkuskipti í skipum.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á siglingaöryggi, stafrænni vegferð, stöðugum umbótum og er góður liðsmaður. Við leggjum áherslu á góða þjálfun og starfsþróun og starfið getur því hentað bæði nýútskrifuðum sem og reynslumeiri einstaklingum sem hafa áhuga á að sérhæfa sig á sviði skipatækni og framtíðarlausna í siglingum.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirfara teikningar og önnur hönnunargögn skipa með hliðsjón af gildandi reglum og stöðlum.

  • Samskipti og samstarf við hönnuði, útgerðir og skoðunaraðila.

  • Aðstoða við tæknilegt mat og þróa faglega þekkingu á sviði skipatækni.

  • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði orkuskiptamála og mengunarmála siglinga, svo sem hjá IMO og EMSA.

  • Þátttaka í þróun og umbótum á verkferlum innan vottaðs gæðakerfis skipadeildar.

  • Afgreiðsla erinda, samskipti og þjónusta við viðskiptavini.

  • Þátttaka í gerð kennsluefnis og leiðbeininga á sínu sérsviði.

 

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkfræði eða tæknifræði á skipa- eða vélasviði

  • Framhaldsmenntun er kostur.

  • Áhugi á tæknimálum og vilji til að læra og tileinka sér nýja þekkingu.

  • Þekking á nýorkumálum og mengunarmálum skipa er kostur

  • Reynsla af störfum við tæknimál skipa kostur

  • Mjög góð tölvukunnátta

  • Góð færni í íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni og frumkvæði og áhugi á að byggja upp sérþekkingu á sviðinu.

 

Frekari upplýsingar um starfið

Samgöngustofa býður meðal annars upp á

  • Sveigjanlegt vinnufyrirkomulag

  • Góða þjálfun og stuðning við uppbyggingu sérþekkingar

  • Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu umhverfi

  • Góðan starfsanda og öflugt teymi sérfræðinga

Samgöngustofa fer með stjórnsýslu og eftirlit varðandi flug, siglingar, umferð, og öryggiseftirlit með samgöngumannvirkjum og leiðsögu. Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun með öflugum mannauði, skýran samfélagslegan tilgang og framtíðarsýn. Lögð er áhersla á uppbyggingu faglegs starfsumhverfis, góða starfsaðstöðu og sveigjanleika í starfi.

Starfshlutfall er 100%.

Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins við viðkomandi stéttarfélag.

Samgöngustofa er með starfsstöðvar í Reykjavík, Akureyri og Ísafirði og getur sérfræðingur í siglingaöryggi starfað frá þeirri starfsstöð sem best hentar.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Inga S. Arnardóttir

Tölvupóstur: inga@hagvangur.is

Sækja um starf