Fara í efni

Reykhólaskóli - Lausar kennarastöður við Reykhólaskóla

Störf í boði

Reykhólahreppur auglýsir stöður kennara við Reykhólaskóla lausar til umsóknar.

Auglýst er eftir kennurum sem geta kennt á öllum stigum í Reykhólaskóla. Skólinn er samrekinn leik- og grunnskóli með frístund og tónlistardeild undir einu þaki. Kennarar taka að sér fjölbreytta kennslu og eru verkefni gjarnar samþætt. Kennt er í námstímabilum og komin góð reynsla á það. Sérstaklega er leitað eftir kennurum sem geta kennt list-og verkgreinar.

Í samreknum skóla eru um 50 nemendur, um 35 nemendur í grunnskóladeild. Einkunnarorð skólans eru Vilji er vegur.

Nánari upplýsingar um skólann er hægt að sjá á reykholaskoli.is. Reykhólar er sveitarfélag með um 270 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum. Ráðið verður í störfin frá og með 1. ágúst nk.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samkennsla á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi
  • Kennsla í list- og verkgreinum
  • Teymiskennsla með öllum kennurum skólans eftir þörfum
  • Ber ábyrgð á námi- og velferð nemendahópsins
  • Vinna samkvæmt skólastefnu Reykhólaskóla og Reykhólahrepps

Menntunar -og hæfiskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf
  • Metnaður og hæfni til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum með áherslu á samþættingu og leiðsagnarnám
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hefur hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta

 

Fríðindi í starfi

Sá sem ráðinn verður í starfið nýtur jafnframt ýmissa hlunninda, þar á meðal flutningastyrks, gjaldfrjáls leikskóla og líkamsræktarstyrks. Svæðið býður upp á einstaka nálægð við náttúru og rólegt, fallegt umhverfi.

 

Annað

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin. Það kemur til greina að ráða inn leiðbeinendur með reynslu ef ekki fáist kennarar með leyfisbréf. Einnig kemur til greina að ráða fólk í hlutastörf ef ekki náist að ráða kennara í 100% stöður, þá kemur til greina að umsjónarkennari sinni list- og verkgreinakennslu og/eða skólaíþróttum.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2026.

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Nánari upplýsingar veitir Anna Margrét Tómasdóttir skólastjóri Reykhólaskóla á netfangið skolastjori@reykholar.is, eða í síma 434-7731. Ferilskrá og umsókn má einnig senda á skolastjori@reykholar.is