Fara í efni

Reykhólaskóli - Deildarstjóri og leikskólakennarar á leikskóla

Störf í boði

Deildarstjóri leikskóla 100% starf (næsti yfirmaður er skólastjóri).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi- og menntun samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
  • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá og skólastefnu Reykhólahrepps.
  • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntastarfi á deildinni.
  • Stjórnun, skipulagning, mönnun og mat á starfi deildarinnar í samráði við skólastjóra.
  • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
  • Að bera ábyrgð á foreldrasamstarfi.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.

 

Menntunar og hæfnikröfur

Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.

  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum.
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Ef ekki fæst fagmenntaður deildarstjóri til starfa er leitað eftir einstaklingi með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfið

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026

 

Staða leikskólakennnara

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara á Hólabæ, leikskóladeild Reykhólaskóla á Reykhólum frá og með 11. ágúst 2026.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri leikskóla.

Starfssvið: Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.

Meginverkefni
Uppeldi og menntun: Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.

Stjórnun og skipulagning:

  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.

Foreldrasamvinna:

  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Annað:

  • Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra.
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.

Menntun og kröfur

Leikskólakennararéttindi eða önnur uppeldismenntun

  • Góð íslenskukunnátta
  • Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
  • Góðir samskiptahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og frumkvæði
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hreint sakavottorð

Annað

Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu af vinnu með börnum kemur til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður. Einnig kemur til greina að ráða í minna starfshlutfall ef ekki fæst starfsmaður í fullt starf.

Ráðið er í stöðuna frá 11. ágúst 2026

Fríðindi í starfi

Sá sem ráðinn verður í starfið nýtur jafnframt ýmissa hlunninda, þar á meðal flutningastyrks, gjaldfrjáls leikskóla og líkamsræktarstyrks. Svæðið býður upp á einstaka nálægð við náttúru og rólegt, fallegt umhverfi.

 

Aðrar upplýsingar

Skólinn er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli undir einu þaki. Í skólanum eru um 50 nemendur. Reykhólar er sveitarfélag með um 240 íbúa og þar af býr um helmingur þeirra í þéttbýlinu á Reykhólum. Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu.

Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi skólans og þarf að hafa góða samstarfs- og samskiptahæfni, vera sveigjanlegur og tilbúinn að takast á við krefjandi en gefandi verkefni.

Bent er á að samkvæmt lögum þurfa umsækjendur að samþykkja heimild til öflunar upplýsinga úr sakaskrá. Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.

Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf (ferilskrá), leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf og meðmæli. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningar hefur verið tekin. skolastjori@reykholar.is  s:434-7731.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2026