Fara í efni

Reykhólahreppur - Staða kennara/leiðbeinanda við Reykhólaskóla

Störf í boði

Auglýst er eftir kennara/leiðbeinanda sem geta kennt á öllum stigum í Reykhólaskóla.

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samkennsla á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi
  • Kennsla í list- og verkgreinum
  • Teymiskennsla með öllum kennurum skólans eftir þörfum
  • Ber ábyrgð á námi- og velferð nemendahópsins
  • Vinna samkvæmt skólastefnu Reykhólaskóla og Reykhólahrepps
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og leyfisbréf eða önnur sambærileg menntun
  • Metnaður og hæfni til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum með áherslu á samþættingu og leiðsagnarnám
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi
  • Áhugi á fræðslu barna og velferð þeirra
  • Reglusemi og samviskusemi
  • Hefur hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta
 
Fríðindi í starfi

Sá sem ráðinn verður í starfið nýtur jafnframt ýmissa hlunninda, þar á meðal flutningastyrks, gjaldfrjáls leikskóla og líkamsræktarstyrks. Svæðið býður upp á einstaka nálægð við náttúru og rólegt, fallegt umhverfi.

 

Frekari upplýsingar um starfið er að finna hér.