25. nóvember 2026
Störf í boði
Starf á aðalskrifstofu Orkubúsins á Ísafirði
- Fjölbreytt og krefjandi starf með áhrif á þróun og umbætur í starfseminni.
- Tækifæri til að taka þátt í stefnumótun og þróunarverkefnum.
- Gott samstarfsumhverfi og tækifæri til faglegrar þróunar.
- Sveigjanlegt og metnaðarfullt vinnuumhverfi þar sem hugmyndir og frumkvæði fá að njóta sín.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með stjórnunarkerfum fyrirtækisins, þar á meðal ISO 9001 og ISO 27001.
- Þróun, viðhald og stöðugar umbætur á ferlum, verkferlum og stjórnskjölum.
- Ritstjórn og þróun gæðahandbókar og annarra lykilskjala.
- Skipulagning og framkvæmd innri úttekta ásamt eftirfylgni umbótaverkefna.
- Þátttaka í ytri úttektum.
- Þátttaka í umsjón með mæla-, álestrar- og skjalakerfum.
- Þátttaka í stefnumótun og verkefnum sem stuðla að aukinni skilvirkni og gæðum í rekstri.
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk varðandi verklag, kröfur og stjórnunarkerfi.
- Samskipti við viðskiptavini, birgja, vottunaraðila og eftirlitsstofnanir.
- Fræðsla, þjálfun og upplýsingagjöf til starfsfólks.
- Eftirfylgni með frávikum, áhættumati og umbótatækifærum.
- Þátttaka í innleiðingu nýrra ferla, kerfa og verkefna þvert á starfsemina.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu.
- Þekking á eða reynsla af stjórnunarkerfum og stöðlum er kostur.
- Góð greiningar- og skipulagshæfni ásamt getu til að fylgja verkefnum eftir og koma þeim í framkvæmd.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð vinnubrögð.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta.