25. febrúar 2026
Störf í boði
Orkubú Vestfjarða ohf. leitar að skipulögðum einstaklingi með góða þekkingu á bókhaldi, skilning á rekstri og fjárhag fyrirtækja og hefur ánægju af að vinna með öðrum.
Orkubú Vestfjarða er fjölskylduvænn vinnustaður sem býður upp á sveigjanlegt og gott vinnuumhverfi. Um fullt starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjárhags-, lánadrottna- og viðskiptamannabókhald
- Afstemming og skil á virðisaukaskatti
- Almennar afstemmingar og skil á gögnum til endurskoðenda
- Þátttaka í umbótaverkefnum á fjármálasviði
- Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af fjárhagsbókhaldi og virðisaukaskattsuppgjörum skilyrði
- Þekking og reynsla af vinnu í fjárhagsbókhaldskerfum
- Reynsla af uppgjörsvinnu, afstemmingum og skilum til endurskoðenda æskileg
- Reynsla af launavinnslu er kostur
- Almenn góð tölvukunnátta, góð kunnátta í Excel og reynsla af Business Central kostur
- Sjálfstæð, skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Góð samskiptafærni
Fríðindi í starfi
Styrkur til heilsueflingar
Frekari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdarstjóri fjármálasviðs - doa@ov.is