Fara í efni

Nýtt fréttabréf Vestfjarðastofu komið út

Fréttir

Fréttabréf janúarmánaðar komið út

Fréttabréf Vestfjarðastofu fyrir janúarmánuð er komið út og má þar finna ýmislegt að því sem við á Vestfjarðastofu fengumst við í mánuðinum. Það teygir sig reyndar aðeins aftur í desember þar sem úrvalsfréttir úr starfseminni þá duttu á milli þilja vegna þess að desemberfréttabréfið var með óhefðbundnu sniði með árspistlum starfsfólks. Janúar var með eindæmum mildur og fór mjúkum höndum um Vestfirðinga. Á Vestfjarðastofu fór mikið af tíma starfsfólks í allra handa innri mál og skipulag fyrir nýja árið sem er fullt af skemmtilegum verkefnum Vestfjörðum til heilla.

Fréttabréf Vestfjarðastofu - janúar 2026