Fara í efni

Nýr upplifunarvefur opnar

Fréttir Markaðsstofa Vestfjarða

Markaðsstofur landshlutanna, MAS, ýttu í gær úr vör samstarfsverkefni sem miðar að því að auðvelda og hvetja enn frekar til ferðalaga innanlands. Verkefnið er liður í að auka á dreifingu ferðamanna um landið sem og styðja við uppbyggingu íslenskrar ferðaþjónustu í kjölfar heimsfaraldurs. Þetta er langstærsta þróunarverkefni sem MAS hefur tekið sér fyrir hendur.

Verkefnið ber yfirskriftina Upplifðu og er sannkölluð stafræn bylting þegar kemur að skipulagningu ferðalaga um Ísland sem og upplýsingagátt um það sem í boði er.

Allar sex Markaðsstofur landshlutanna, Markaðsstofa Norðurlands, Markaðsstofa Vestfjarða, Markaðsstofa Vesturlands, Austurbrú, Markaðsstofa Reykjaness og Markaðsstofa Suðurlands standa að verkefninu.

Um er að ræða gagnvirkt vefsvæði, www.upplifdu.is þar sem notendum gefst kostur á að sníða ferðalagið nákvæmlega eftir sínu höfði og fá aðstoð við að sjá hvað er í boði á hverjum stað, fá nákvæma tímaáætlun milli áfangastaða og síðast en ekki síst, uppgötva nýja möguleika á myndrænan hátt.