Fara í efni

100 milljónir í Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina

Fréttir

Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Heildarfjárhæð styrkja árið 2021 er 100 milljónir króna, en hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir króna og er úthlutað til árs í senn. Ráðherra mun skipa matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja. 

Hlutverk styrkjanna er að: 

  • Auka nýsköpun á landsbyggðinni 
  • Styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni
  • Stuðla að uppbyggingu vistkerfis fyrir nýsköpunarstarfssemi og frumkvöðlastarf á forsendum svæðanna.   

Um styrkina:

  • Styrkjunum er úthlutað til nýsköpunarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins
  • Styrkjum er úthlutað til árs í senn, hvert verkefni getur hlotið að hámarki 20 milljóna króna styrk 
  • Matshópur metur umsóknir í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda

Reglur fyrir Lóu - nýsköpunarstyrki

Umsóknarfrestur er til 09. mars 2021.
Umsóknum er skilað rafrænt.

 Opnað verður fyrir umsóknir þann 11. febrúar á eyðublaðavef stjórnarráðsins