Fara í efni

Námskeið um stafræna framþróun innan sveitarfélaga

Fréttir Fjórðungssamband Vestfirðinga

Samband íslenskra sveitarfélaga í samvinnu við Vestfjarðastofu býður sveitarstjórnarmönnum og starfsfólki sveitarfélaga á Vestfjörðum upp á námskeið um stafræna framþróun innan sveitarfélaga. Námskeiðið er í umsjón Fjólu Maríu Ágústsdóttur, breytingarstjóra stafrænnar þjónustu hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Námskeiðið fer fram 4. júní kl. 13-15 á Zoom. Nauðsynlegt er að skrá sig til að fá boð á fundinn. Skráning fer fram hér  

Viðfangsefni:

  • Almennt um stafræna framþróun
  • Hvað þýðir stafræn umbreyting fyrir sveitarfélög
  • Staða sveitarfélaganna gagnvart stafrænni framþróun
  • Áhrif stafrænnar framþróunar á samfélag og fólk
  • Samstarf sveitarfélaga í stafrænni framþróun – hvernig gæti það farið fram
  • Hvernig þurfa sveitarfélög að bregðast við
  • Val á tækifærum og hvaða þjónustur ætti að gera stafrænar
  • Mikilvæg hæfni
  • Hvernig hafa Danir skipulagt sig
  • Aðferðir, verklag og endurhönnun þjónustu