Fara í efni

Náms- og starfsráðgjafi hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Störf í boði

Fræðslumiðstöð Vestfjarða auglýsir eftir náms- og starfsráðgjafa til að halda utan um náms- og starfsráðgjöf og verkefnastjórn, 50-100% stöðugildi.

Þekking á fullorðins- og framhaldsfræðslu er kostur

Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2026. Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi skal senda Sædísi Maríu Jónatansdóttur, forstöðumanni Fræðslumiðstöðvarinnar, á netfangið saedis@frmst.is. Upplýsingar í síma 456-5025 eða 861-4408

Starfið er laust frá 1. mars 2026

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita ráðgjöf og upplýsingar um nám, starfsþróun og raunfærnimat
  • Verkefnastjórn sem snýr að námi
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun, náms- og starfsráðgjöf
  • Góð færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tungumálakunnátta og tölvufærni