Fara í efni

Miðlunar- og samskiptastefna Vestfjarðastofu gefin út

Fréttir

Vestfjarðastofa hefur gefið út miðlunar- og samskiptastefnu sem ætlað er að tryggja gagnsæi, aðgengi og samræmi í upplýsingamiðlun stofnunarinnar. Stefnan markar sameiginlega sýn um ólíka miðlun og er liður í því að efla fagleg og skilvirk samskipti.

Í stefnunni er lögð áhersla á að miðlun endurspegli hlutverk Vestfjarðastofu sem sameiginlegs vettvangs fyrir sveitarfélög, atvinnuþróun, markaðssetningu og svæðasamstarf á Vestfjörðum. Stefnan nær bæði til innri og ytri þátta og með henni er lagður hornsteinn að markvissri miðlun með skýrum verklagsreglum og skilgreindri ábyrgð starfsfólks. Jafnframt eru skilgreind hlutverk helstu miðlunarleiða stofnunarinnar

Stefnan byggir meðal annars á meginreglum um gagnsæi, áreiðanleika, aðgengi og fagmennsku. Þá er sérstök áhersla lögð á vandað málfar, samræmda framsetningu efnis og ábyrga notkun myndefnis og samfélagsmiðla.

Með stefnunni fylgir einnig birtingaráætlun sem kveður á um reglubundna útgáfu frétta, fréttabréfa og annars kynningarefnis. Þá er fjallað um verklag þegar upp koma álitamál eða neikvæð umfjöllun, með það að markmiði að tryggja skjót og fagleg viðbrögð.

Miðlunar- og samskiptastefnan er lifandi skjal sem tekur mið af tækniþróun og áherslum stofnunarinnar og verður hún endurskoðuð á tveggja ára fresti.

Stefnuna má nálgast hér.