Vestfirðir eru í aðalhlutverki í nýrri heimildarmynd sem kom út undir lok febrúar þar sem sex vinir leggja upp í 800 kílómetra langt hjólareiðaferðalag um Vestfjarðaleiðina. Myndin var tekin upp í ágúst á síðasta ári og þrátt fyrir að veðrið hafi leikið við kappana drjúgan part af tímanum má sjá að ferðalagið er gríðarleg manndómsvígsla. Ferðalagið sem hófst og endaði á Ísafirði tók átta daga.

Myndin er eftir breska blaðamanninn og ljósmyndarann Oscar Boyd. Með í ferðinni voru Kaz Firpo, Finn Harries, Jeremy Snell, Trent Kusters og Minka Farthing-Kohl.

Við áhorf á myndina má vel skilja hvers vegna Vestfjarðaleiðin hefur á undanförnum árum vakið aukna athygli meðal hjólreiðafólks sem sækist eftir ævintýrum á afskekktum slóðum. Þessi áhrifaríki kokteill stórbrotinnar fegurðar, undursamlegrar kyrrðar og mannraunum miklum skilar sér vel í myndinni sem við hvetjum ykkur öll til að horfa á hér.
Vestfjarðaleiðin er ferðamannaleið um Vestfirði og Dali sem er markaðssett á íslenskri tungu undir því heiti en sem The Westfjords Way á ensku. Markaðsstofa Vestfjarða er stoltur styrktaraðili myndarinnar, en allt skipulag var í höndum The Fjord hub.
Myndirnar sem fylgja fréttinni eru frá þeim félögum @Badlands Cycle Club.
