Fara í efni

Mannamót markaðsstofa

Fréttir
Nú er búið að opna fyrir skráningar á Mannamót Markaðsstofa landshlutanna, sem verður haldið í Kórnum í Kópavogi fimmtudaginn 19. janúar 2023 frá klukkan 12 til 17. Mannamót er fjölmennasti viðburðurinn í íslenskri ferðaþjónustu þar sem hátt í þúsund gestir hafa mætt og sýnendur verið um 250 talsins. Tilgangur Mannamóta er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustufólki sem staðsett er á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt að kynnast betur fólki í ferðaþjónustu og fjölmörgum fagaðilum sem koma á Mannamót.
Ísland hefur upp á margt að bjóða, allan ársins hring og á Mannamótum eru sýnendur hvattir til þess að leggja sérstaka áherslu á það sem boðið er upp á yfir vetrartímann.

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Allar markaðsstofurnar munu bjóða sínum samstarfsfyrirtækjum, sem skrá sig á Mannamót, á sérstakan undirbúningsfund þar sem farið verður yfir hvað gott er að hafa í huga fyrir svona sýningu, hvaða kynningarefni hentar best og svo framvegis. Þessir fundir verða auglýstir þegar nær dregur.
Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Við biðjum þó þá sem ætla að koma sem gestir að skrá sig svo hægt sé að áætla fjöldann.
Skráningu lýkur þann 20. desember 2022. Verð 22.900+ vsk.

Smelltu á þennan hlekk til að skrá þig sem sýnanda: https://www.markadsstofur.is/skraning-synenda

Skoða á viðburðardagatali