Fara í efni

Listahátíð í Reykjavík hefst á Vestfjörðum

Fréttir
Emilie Dalum, sýningarstjóri The Factory, og Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátí…
Emilie Dalum, sýningarstjóri The Factory, og Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.

Tveir vestfirskir menningarviðburðir eru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og marka þeir upphaf hátíðarinnar.
Í Djúpavík á Ströndum var 23. maí opnuð alþjóðlega myndlistarsýningin The Factory. Þetta er tíunda sumarið sem sýning er opnuð undir þessu nafni, en sýningarstjóri hefur frá upphafi verið Emilie Dalum. Að þessu sinni er yfirskrift hátíðarinnar Að nálgast hið ókunna og sýna eftirfarandi listamenn verk sín á sýningunni: Abigail Portner, April Dobbins, Darja Shatalova, Gabriel Dawe, Hildur Henrýsdóttir, Olivia Lloyd-Sherlock Arribas Patty Spyrakos, Shana de Villiers, Sonja Strange, Sóley Ragnarsdóttir, Viðar Logi. Sýningin er opin daglega í allt sumar.

24. maí opnaði svo Listvinnzlan sýninguna Ómur í Listasafni Samúels í Selárdal. Í þessu magnaða safni þar sem verk Samúels Jónssonar rísa úr landslaginu eins og minningar mótaðar í steypu, mætast ólíkar raddir í sameiginlegum hljómi. Hópur listafólks sýnir þar ný verk sem unnin eru í samtali við þennan einstaka höggmyndagarð og verða þannig hluti af umhverfi hans. Sýningarstjóri er Margrét M. Norðdahl. Einkum er um höggmyndir að ræða, en þessir listamenn sýna í Selárdal: Andrea Gavern, Atli Már Indriðason, Ásdís Ásgeirsdóttir, Benedikta Rostan, Birkir Sigurðsson, Elín S.M. Ólafsdóttir ESMÓ, Elín Fanney Ólafsdóttir, Elísabet Sóldís Þorsteinsdóttir Erlingur Örn Skarphéðinsson Frida Adriana Martins, Gígja Garðarsdóttir, Guðbjörg Lára Viðarsdóttir Guðmundur Stefán Guðmundsson Gunnar Már Pálsson, Harpa Rut, Helga Matthildur Viðarsdóttir Hjördís Árnadóttir, Ingimar Azzad Torossian, Ísak Óli Sævarsson, Kolbeinn Jón Magnússon Kristján B Rostan, Leona Krlínová, Lilja Dögg Birgisdóttir, Luiza Katarzyna Kierzk, Margrét M. Norðdahl, Óskar Theódórsson, Rut Ottósdóttir, Sigrún Huld Hrafnsdóttir Þórir Gunnarsson Listapúkinn, Þorvaldur Arnar Guðmundsson.

Dagskrá Listahátíðar má finna hér.