Leikskólinn Tangi á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar 100% sumarstarf starfsmanns í leikskóla.
Um er að ræða tímabundið starf frá 11. maí til og með 7. júlí 2026. Starfið er mjög fjölbreytt, skemmtilegt og gefandi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að og styðja við uppeldi og menntun leikskólabarna
- Þátttaka í skipulagningu starfs og foreldrasamstarfi
Hæfniskröfur:
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Áhugi á starfi með ungum börnum
- Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag VerkVest/Kjöl.
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2025. Umsóknir skulu sendar til Kötlu Vigdísar Vernharðsdóttur leikskólastjóra á netfangið katlave@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá.
Nánari upplýsingar veitir Katla, í síma 450-8295 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-