Laust er til umsóknar starf leikskólastjóra við leikskólann Sólborg á Ísafirði. Starfshlutfallið er 100% og er æskilegast að viðkomandi geti hafið störf 15. júní 2026. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs.
Sólborg er fjögurra deilda leikskóli með um 60 börn og starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia. Við leggjum áherslu á jákvætt og faglegt starfsumhverfi, gleði, kærleika og hæglæti í leik og námi. Gott samstarf og traust í samskiptum við börn, foreldra og starfsfólk er grundvallaratriði í starfi Sólborgar.
Leitað er að metnaðarfullum stjórnanda sem býr yfir framúrskarandi samskiptahæfni, hefur jákvæð áhrif á starfsfólk, hlustar vel og styður starfsþróun. Viðkomandi þarf að hafa reynslu og þekkingu á leikskólastarfi og vera tilbúinn að vinna að jákvæðri og uppbyggilegri vinnustaðamenningu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að veita leikskólanum faglega forystu á sviði uppeldis og kennslu.
- Að leiða samstarf starfsfólks, foreldra og leikskólans af yfirvegun og virðingu.
- Að stýra daglegri starfsemi, fagstarfi, starfsmannamálum, fjárhag og rekstri.
- Að stuðla að öruggu, faglegu og virku samstarfi í samræmi við farsældarlög.
- Að halda uppi jákvæðum samskiptum og farsælli lausn ágreinings þegar þörf er á.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf leikskólakennara (leyfi til að nota starfsheitið kennari)
- Viðbótarmenntun í stjórnun eða reynsla af stjórnunarstarfi á leikskólastigi er kostur
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum er skilyrði
- Faglegur metnaður, frumkvæði og hugmyndaauðgi
- Skipulagshæfni og færni í að leiða breytingar af yfirvegun og með samráði
- Góð íslenskukunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta kostur
- Hæfni til að miðla upplýsingum bæði munnlega og skriflega
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda leikskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2026. Umsóknir skulu sendar til Baldurs Inga Jónassonar, mannauðsstjóra, á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja kynningarbréf, ferilskrá og afrit af prófskírteinum. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, hafdisgu@isafjordur.is eða í síma 450-8000.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-