10. ágúst 2026
Störf í boði
Leikskólinn Sólborg á Ísafirði auglýsir laus til umsóknar 100% störf leikskólakennara eða starfsmanna í leikskóla. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Sólborg er fjögurra deilda leikskóli sem starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en í skólanum eru um 60 börn. Um er að ræða mjög skemmtileg og gefandi störf í lifandi starfsumhverfi. Vinnutími er 36 klst. á viku, boðið er upp á ókeypis fæði á vinnutíma og þá er hægt að sækja um stuðning vegna fjarnáms.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Góð íslenskukunnátta