Fara í efni

Leikskólinn Glaðheimar í Bolungarvík - Leikskólastjóri

Störf í boði

Viltu leiða öflugan leikskóla í einstöku umhverfi þar sem náttúran og heilsuefling eru í forgrunni? Leikskólinn Glaðheimar auglýsir eftir metnaðarfullum og skapandi leiðtoga með skýra framtíðarsýn í skólamálum.

Helstu verkefni

  • Stýrir og ber ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi leikskóla
  • Faglegur leiðtogi og mótar framtíðarsýn í samræmi við skólastefnu Bolungarvíkur, aðalnámskrá leikskóla og lög um leikskóla
  • Veitir skólanum forstöðu á sviði kennslu og þróunar
  • Ber ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun
  • Tekur þátt í samstarfi við aðila skólasamfélagsins í Bolungarvík

Hæfnikröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar sem nýtist í starfi er kostur
  • Leiðtoga- og stjórnunarhæfni, reynsla af stjórnun er æskileg.
  • Kennslureynsla á leikskólastigi
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun er kostur
  • Metnaður, hugmyndaauðgi og skipulagshæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði
  • Almenn tölvukunnátta og góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
  • Hreint sakavottorð

Um Glaðheima

Leikskólinn er í nýlegu og endurbættu húsnæði með um 40 nemendur. Áhersla er á lífsleikni, hreyfingu og útivist. Skólinn starfar í nánu samstarfi við grunnskólann og sundlaug Bolungarvíkur. Kjörorð skólans eru virðing, ábyrgð og traust.

Bolungarvík er hlýlegt sveitarfélag á Vestfjörðum. Bærinn býður upp á einstaka náttúrufegurð, sterkt samfélag og fjölbreytta þjónustu.

Í Bolungarvík er lögð áhersla á heilsueflingu, menntun og velferð íbúa. Þar er að finna leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og öflugt félagslíf.

Umsóknir eru sendar á bolungarvik@bolungarvik.is

Nánari upplýsingar

Umsóknum skilað á netfangið bolungarvik@bolungarvik.is með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu, ásamt ábendingum um meðmælendur.

Nánari upplýsingar veita Jón Páll Hreinsson jonpall@bolungarvik.is og Kristinn Gauti Einarsson kristinn@bolungarvik.is