Fara í efni

Leikskólinn Eyrarskjól - Leikskólakennari/Leiðbeinandi

Störf í boði

Hefur þú gaman að börnum?

Finnst þér gaman að leika þér með leir? Kubba? Skapa?

Finnst þér prumpubrandarar enn fyndnir?

Þá er þetta rétti staðurinn fyrir þig!

 

Kæri vinur/vinkona, vertu velkomin á Leikskólann okkar Eyrarskjól á Ísafirði! ☀️

Við leitum að jákvæðum og lífsglöðum einstakling sem til er í að tileinka sér starfshætti Hjallastefnunnar af gleði og kærleika.

Við erum að leita að leikskólakennurum eða leiðbeinendum í bæði 50-70% starf og í 100% starf sem getur hafið störf sem fyrst.

Viðkomandi þarf að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa áhuga á jafnrétti og lýðræði í skólastarfi.

Leikskólinn Eyrarskjól er 5 kjarna leikskóli staðsettur á Ísafirði þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Hjallastefnunnar.

Í Eyrarskjóli er skemmtilegt starfsfólk, einstök vinnustaðamenning og jákvæður skólabragur.

 

 

 
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vinna að uppeldi og menntun ungra barna
  • Hafa gaman í vinnunni
 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
  • Reynsla af vinnu með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta
 
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk er í fríu fæði
  • Vinnustytting