Góð mæting, líflegar umræður og fjölmargar hugmyndir einkenndu íbúafund verkefnisins Jú víst! Kraftur í Kaldrana sem haldinn var í Samkomuhúsinu Baldri á Drangsnesi þann 13. október síðastliðinn. Fundurinn var mikilvægur vettvangur fyrir íbúa til að ræða framtíð byggðarinnar, kynna sér framgang verkefnisins og taka þátt í að móta næstu skref.
Helga Harðardóttir, formaður verkefnisstjórnar, setti fundinn og bauð Ingibjörgu Benediktsdóttur, nýjan verkefnisstjóra, velkomna til starfa. Jafnframt voru Valgeiri Jens Guðmundssyni, fráfarandi verkefnisstjóra, þökkuð góð störf í þágu verkefnisins.

Ingibjörg Benediktsdóttir nýr verkefnastjóri í Kaldrananeshreppi
Nítján verkefni hlutu styrk úr Frumkvæðissjóði
Á fundinum var farið yfir stöðu verkefnisins og framgang starfsmarkmiða á fyrsta þátttökuári Kaldrananeshrepps í verkefninu Brothættar byggðir. Rætt var um þau verkefni sem þegar eru komin af stað, markmið sem unnið er að og þau tækifæri sem fram undan eru.
Á árinu hlutu 19 verkefni styrk úr Frumkvæðissjóði Jú víst! Kraftur í Kaldrana, en sjóðurinn hefur það hlutverk að styðja við frumkvæði íbúa, atvinnuuppbyggingu og samfélagsleg verkefni í Kaldrananeshreppi.
Tvö styrkt verkefni voru kynnt sérstaklega á fundinum. Anna Björg Þórarinsdóttir sagði frá áformum um leik- og útivistarsvæði við Kotbýli Kuklarans í Bjarnafirði, sem er hluti af Galdrasýningunni á Ströndum. Vésteinn Sveinsson kynnti uppbyggingu í Ásmundarnesi þar sem fjölskyldan hefur tekið við búrekstri og vinnur meðal annars að seiðaeldi og æðarvarpi.
Opnað verður aftur fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóðinn í desember og eru íbúar hvattir til að nýta tækifærið til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd.
Fjármögnunarmöguleikar kynntir
Fulltrúar fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar, þau Andri Þór Árnason og Guðbjörg Óskarsdóttir, voru meðal gesta fundarins. Guðbjörg kynnti fjölbreytta lánamöguleika Byggðastofnunar og sérstaklega lánaflokkinn Viðkvæm byggðarlög, þar sem íbúar þátttökubyggðarlaga Brothættra byggða njóta forgangs.
Kynningin var mikilvægt innlegg í umræðu um atvinnuuppbyggingu og möguleika einstaklinga og fyrirtækja til að hrinda nýjum hugmyndum í framkvæmd.

Hugmyndir íbúa móta næstu skref
Að loknum kynningum og góðum veitingum frá Kvenfélaginu Snót tóku fundargestir þátt í hópavinnu þar sem rætt var um verkefnisáætlunina, meginmarkmið verkefnisins og þau starfsmarkmið sem mótuð voru á íbúaþingi fyrir um ári síðan.
Líflegar umræður sköpuðust og fram komu fjölmargar góðar hugmyndir, gagnlegar ábendingar og sjónarmið um framtíð byggðarinnar. Niðurstöðurnar verða nýttar í áframhaldandi vinnu verkefnisins og eru mikilvægt veganesti við forgangsröðun og þróun verkefna.
Fyrr um daginn hafði verkefnisstjórn jafnframt fundað og kynnt sér framgang tveggja verkefna sem hlotið hafa styrk úr Frumkvæðissjóði. Heimsótt var Búðin á Drangsnesi þar sem Mikael Rafn L. Steingrímsson kynnti þær breytingar sem þegar hafa verið gerðar og frekari áform um uppbyggingu. Einnig voru fyrirhugaðar endurbætur á heitu pottunum í fjöruborðinu á Drangsnesi kynntar.

Verkefnisstjórn Jú víst! Kraftur í Kaldrana
Krafturinn býr í fólkinu
Góð þátttaka á íbúafundinum endurspeglar þann kraft og metnað sem býr í samfélaginu. Verkefnið Jú víst! Kraftur í Kaldrana byggir á virkri þátttöku íbúa, samstarfi og sameiginlegum vilja til að efla byggðina til framtíðar.
Verkefnisstjórn þakkar öllum þeim sem mættu, tóku þátt í umræðum og lögðu sitt af mörkum til vel heppnaðs fundar. Sérstakar þakkir fær Kvenfélagið Snót fyrir frábærar veitingar.
Það er sannarlega kraftur í Kaldrana og ljóst að fjölmörg spennandi tækifæri eru fram undan. Með samstilltu átaki og virkri þátttöku íbúa er hægt að breyta góðum hugmyndum í raunveruleg verkefni sem styrkja samfélagið til framtíðar.