Fara í efni

Kallað eftir viðburðum á Púkann

Fréttir

Púkinn, barnamenningarhátíð á Vestfjörðum verður haldinn í annað sinn 15. - 26. apríl. Einstaklingar, skólar og stofnanir eru hvött til að efna til viðburða á hátíðinni. Þema hátíðarinnar í ár er „Hvers vegna búum við hér?“

Að þessu sinni verður lögð áhersla á heimatilbúin atriði, gjarnan með þátttöku foreldra. Hátíðin verður haldin um allan Vestfjarðakjálkann og er ætluð börnum á grunnskólaaldri. 

Nú er kallað eftir viðburðum á hátíðina. Ef þú hefur áhuga á að vera með viðburð á hátíðinni þarftu að smella á á þetta skráningarfom. Frestur til að skrá viðburði er til og með 2. apríl.

Það er hægt að sækja um styrki til viðburðahalds á hátíðinni. Heildarupphæð styrkja verður 800.000 kr. Til að sækja um styrk þarftu að smella á þetta umsóknareyðublað. Frestur til að sækja um styrki er til 20. mars.