Fara í efni

Isavia - Starfsmaður á Bíldudalsflugvelli

Störf í boði

Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til starfa við flugvallarþjónustu á Bíldudalsflugvelli. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér margvísleg verkefni sem tengjast daglegum rekstri og þjónustu flugvallarins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sjá um daglegt eftirlit, rekstur og viðhald flugvallarmannvirkja og búnaðar

  • Tryggja örugga og hnökralausa starfsemi flugvallarins í samræmi við verklag og reglur

  • Annast snjóruðning og hálkuvarnir til að tryggja öruggar aðstæður fyrir flugumferð allt árið um kring

  • Halda uppi samskiptum við flugumferð í gegnum flugradíó (AFIS)

  • Sinna björgunar- og slökkviþjónustu flugvallarins

  • Bregðast við atvikum og tryggja viðeigandi viðbrögð við ófyrirséðum aðstæðum

  • Taka þátt í þjálfun og viðhaldi á hæfni sem snýr að öryggi og rekstri

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Meirapróf og vinnuvélaréttindi - Frumnámskeið

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur 

  • Reynsla af slökkvistörfum og snjóruðningi er kostur 

  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg 

  • Gott vald á íslensku og ensku 

Til að geta sinnt flugvallarþjónustu þarf viðkomandi að ljúka grunnnámi í bæði flugvallarþjónustu og flugradíó.
Standast þarf læknisskoðun og þrekpróf til að geta sinnt slökkviþjónustu.

Unnið er á vikuvöktum ásamt bakvakt.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Páll Janus Hilmarsson umdæmisstjóri, pall.hilmarsson@isavia.is

Vegna kröfureglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að standast bakgrunnsskoðun lögreglu og vera með hreint sakavottorð.

Sækja um starf