Stjórnsýslu- og fjármálasvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf innheimtufulltrúa / fjármálafulltrúa á skrifstofum Ísafjarðarbæjar. Um er að ræða 100% starf. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 16. nóvember eða eftir nánara samkomulagi.
Starfsmaður annast fyrst og fremst verkefni innheimtu – gerð og útskrift reikninga Ísafjarðarbæjar, Fasteigna Ísafjarðarbæjar og Byggðasafns Vestfjarða og sér um fruminnheimtu þeirra. Starfsmaður sér um samskipti við innheimtuaðila í milli- og löginnheimtu, þjónustar viðskiptavini sveitarfélagsins við reikninga og uppgjör skulda, s.s. með gerð greiðslusamninga og greiðslufresta, í samræmi við verklag og reglur, og er í sambandi við forstöðumenn og aðra starfsmenn um innheimtumál og útgáfu reikninga. Starfsmaður hefur yfirsýn og eftirlit með skuldastöðu aðila við sveitarfélagið og sér um samningagerð við skuldunauta í samráði við fjármálastjóra og sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Starfið felur jafnframt í sér önnur verkefni á stjórnsýslu- og fjármálasviði, s.s. í bókhaldi við bókun reikninga, fjármálatengd verkefni og skýrslugerð, við fjárhagsáætlunar- og ársreikningagerð, og í launadeild við skráningu gagna.
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálsviðs, en dagleg stýring verkefna er hjá fjármálastjóra, og aðalbókara eftir atvikum.
Helstu verkefni
- Útskrift, innheimta reikninga og bókun innborgana
- Skýrslugerð um stöðu innheimtumála og fjármála til fjármála- og bæjarstjóra
- Samskipti við innheimtuþjónustu vegna innheimtumála
- Yfirferð hreyfingalista, afstemmingar og lagfæring á viðskiptastöðum
- Eftirlit með skuldastöðu einstakra aðila og opinna innheimtumála
- Samningagerð og upplýsingaveita við skuldunauta
- Gerð afskrifta- og fyrningarlista
- Samskipti við forstöðumenn og viðskiptavini vegna innheimtumála
- Veita faglega og góða þjónustu við viðskiptavini sem þjónustunnar njóta
- Forskráning og bókun innsendra reikninga í bókhaldskerfi, ásamt gagnavinnslu á fjármálasviði
- Önnur verkefni sem yfirmaður kann að fela honum og tengjast starfinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- BSc Háskólapróf í viðskiptafræði eða tengdum greinum
- Reynsla af fjármálatengdum störfum, s.s. innheimtu eða bókhaldi
- Þekking á BC365 eða sambærilegu bókhaldskerfi
- Mjög góð færni í excel og word, auk góðrar almennrar tölvuþekkingar
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Talnagleggni, skipulagshæfni, vandvirkni og nákvæmni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og sveigjanleiki
Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (BHM).
Umsóknarfrestur er til og með 9. september 2026. Umsóknum skal skilað til sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Ísafjarðarbæjar á netfangið bryndis@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Ósk Jónsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu og fjármálasviðs í gegnum tölvupóstfangið bryndis@isafjordur.is.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-