Fara í efni

Ísafjarðarbær - gjaldkeri

Störf í boði

Stjórnsýslu- og fjármálasvið Ísafjarðarbæjar auglýsir laust til umsóknar starf gjaldkera á skrifstofum Ísafjarðarbæjar. Um er að ræða 55% starf. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 16. nóvember eða eftir nánara samkomulagi.

Gjaldkeri ber ábyrgð á meðhöndlun og greiðslu reikninga sveitarfélagsins, í gegnum gjaldkerakerfi og með millifærslum í banka. Hann ber ábyrgð á frágangi þeirra skjala og annarra gagna sem hann vinnur með hverju sinni bæði til tímabundinnar og varanlegrar geymslu. Gjaldkeri ber ábyrgð, ásamt öðrum, á gjaldaliðum og ber nokkra ábyrgð á fjármálum og skal hafa yfirsýn yfir viðskiptaskuldir sveitarfélagsins. Gjaldkeri er í miklum samskiptum við lánardrottna, forstöðumenn og aðra starfsmenn Ísafjarðarbæjar.

Gjaldkeri er í reglulegu sambandi við fjármálastjóra um stöðu reikninga, lausafjárþörf og fjárstýringu sveitarfélagsins. Gjaldkeri sér jafnframt um afstemmingar lánadrottna sveitarfélagsins með reglulegum hætti, tekur þátt í yfirferð og leiðréttingu á tekju- og útgjaldaliðum og fylgir eftir kröfum í samráði við innheimtufulltrúa.

Gjaldkeri aðstoðar með afleysingu í afgreiðslu bæjarskrifstofu, opnun og lokun og móttöku gesta og viðskiptavina á vinnutíma sínum.

Næsti yfirmaður er sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálsviðs, en dagleg stýring verkefna er hjá fjármálastjóra.

 

Helstu verkefni

  • Greiðsla reikninga og eftirfylgni á samþykkt reikninga
  • Móttaka innborgana til sveitarfélagsins
  • Uppgjör sjóðs
  • Yfirsýn yfir viðskiptaskuldir Ísafjarðarbæjar
  • Upplýsingagjöf við fjármálastjóra um stöðu reikninga og lausafjárþörf
  • Samskipti við forstöðumenn og aðra starfsmenn Ísafjarðarbæjar
  • Samskipti við lánadrottna
  • Afstemming viðskiptareikninga
  • Þátttaka í yfirferð og leiðréttingu á tekju- og útgjaldaliðum
  • Eftirfylgni krafna í samráði við innheimtufulltrúa
  • Veita faglega og góða þjónustu við viðskiptavini sem þjónustunnar njóta
  • Ýmis almenn skrifstofustörf, s.s. umsjón afgreiðslu og skjalavinnsla, auk tilfallandi verkefna
  • Önnur verkefni sem yfirmaður kann að fela honum og tengjast starfinu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • BSc Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Háskólapróf í viðskiptafræði eða tengdum greinum er kostur
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Þekking á BC365 eða sambærilegu fjármálakerfi er kostur
  • Talnagleggni, skipulagshæfni, vandvirkni og nákvæmni
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og rík þjónustulund
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Mjög góð færni í excel og word, auk góðrar almennrar tölvuþekkingar
  • Góð íslenskukunnátta

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 9. september 2026. Umsóknum skal skilað til sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs Ísafjarðarbæjar á netfangið bryndis@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Nánari upplýsingar veitir Bryndís Ósk Jónsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu og fjármálasviðs í gegnum tölvupóstfangið bryndis@isafjordur.is.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-