Slökkvilið Ísafjarðarbæjar óskar eftir að ráða starfsmann í 100% starf slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sjúkraflutningar og bakvaktir eftir kl.16
- Slökkvistarf og reykköfun
- Björgunarstörf
- Ýmis önnur tilfallandi verkefni
Menntun og hæfni:
- Fullgilt sveinspróf, stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Löggilding slökkviliðsmanna
- Gerð er krafa um EMT-A eða hærra og starfsleyfi frá Landlækni
- Reynsla af störfum í slökkviliði og sjúkraflutningum
- Aukin ökurétttindi C og BE flokkur vegna slökkviliðs- og sjúkraflutninga
- Aukin ökuréttindi C1 vegna sjúkraflutninga
- Stjórnunar- og eldvarnarnám frá Brunamálaskóla HMS er kostur
- Góð íslensku og enskukunnátta, kunnátta á þriðja tungumáli er kostur
- Færni í samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi
- Hafa staðist þrekpróf og búa yfir hæfni í sundi
- Góð tölvukunnátta
Launakjör eru skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Arnar Jónsson í gegnum tölvupóst (sigurdura@isafjordur.is) eða í síma 450-8000.
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2026. Umsókn, ferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréf skal senda til mannauðsstjóra á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-