Fara í efni

Ísafjarðarbær - Mannauðsstjóri Ísafjarðarbæjar

Störf í boði

Ísafjarðarbær auglýsir laust til umsóknar starf mannauðsstjóra. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi starf í gróskuríku umhverfi. Mannauðsstjóri hefur yfirumsjón með mannauðsmálum sveitarfélagsins, vinnur náið með bæjarstjóra og sinnir alhliða ráðgjöf til stjórnenda. Meginhlutverk hans er að útfæra mannauðsmál í samræmi við stefnu og áherslur sveitarfélagsins, veita starfsfólki stuðning og aðstoða stjórnendur við faglegar ákvarðanir er lúta að mannauðnum. Mannauðsstjóri ber jafnframt ábyrgð á framkvæmd mannauðsstefnu og vinnur að því að móta sterka liðsheild og heilbrigða vinnustaðamenningu þvert á sveitarfélagið. Næsti yfirmaður er bæjarstjóri en mannauðsstjóri fer ekki með mannaforráð.

Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi sem er jákvæður, þjónustulundaður, flinkur í samskiptum og óhræddur við að sýna frumkvæði. Um er að ræða 100% starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 16. nóvember 2026 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Áætlanagerð í mannauðsmálum
  • Samþætting aðferða mannauðsstjórnunar inn í stjórnun stofnana sveitarfélagsins og samræming vinnubragða
  • Handleiðsla, viðtöl, samtöl og ráðgjöf til starfsmanna og stjórnenda
  • Samráð og samstarf við launadeild, eftirfylgni kjarasamninga
  • Gerð og skráning verkferla og verklagsreglna ásamt umsjón með starfsmannahandbók
  • Eftirfylgni mannauðsstefnu og þátttaka í stefnumótun
  • Ráðningar og starfsmannaval, gerð starfslýsinga og starfsmat
  • Umsjón með framkvæmd kannana og eftirfylgni
  • Skipulagning, umsjón og utanumhald fræðslu og stjórnendaþjálfunar
  • Samskipti og samvinna við ýmsa utanaðkomandi aðila
  • Almenn aðstoð, upplýsingagjöf og stuðningur við stjórnendur og starfsfólk

Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu
  • Framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála eða tengdum greinum
  • Starfsreynsla á sviði stjórnunar- og mannauðsmála
  • Þekking á sviði stjórnsýslu- og vinnuréttar
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Leiðtogahæfni og geta til að hvetja aðra til árangurs
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og geta til að hrinda hlutum í framkvæmd
  • Skipulags- og greiningarhæfni og gagnrýnin hugsun
  • Rík þjónustulund
  • Góð almenn tölvuþekking og aðlögunarhæfni að tækninýjungum
  • Góð íslensku- og enskunnátta og færni til að tjá sig skipulega bæði í ræðu og riti

Launakjör eru samkvæmt samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (BHM).

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2026. Umsóknum skal skilað til mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Nánari upplýsingar um starfið veita Baldur Ingi Jónasson, mannauðsstjóri í síma 450-8032 eða í gegnum tölvupóstfangið baldurjo@isafjordur.is og Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri í síma 450-8000 eða í gegnum tölvupóstfangið gylfi.olafsson@isafjordur.is.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

-Við þjónum með gleði til gagns-