Ísafjarðarbær óskar eftir að ráða kennsluráðgjafa í 100% starf á skóla- og tómstundasvið. Starfið felst í að efla faglegt starf leik- og grunnskóla þannig að nemendur fái sem best notið sín í námi og starfsfólk skólanna njóti stuðnings og ráðgjafar sem byggir á trausti, fagmennsku og góðu samstarfi. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 4. ágúst 2026. Næsti yfirmaður kennsluráðgjafa er sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs.
Í sveitarfélaginu eru sex leikskólar og fjórir grunnskólar. Kennsluráðgjafi starfar í nánu samstarfi við kennara, nemendur, foreldra, stjórnendur og aðra sem koma að málefnum nemenda. Mikil áhersla er lögð á fagleg samskipti, yfirveguð vinnubrögð og hæfni til að mynda traust í öllum samstarfshópum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fræðsla og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla vegna einstaklinga og/eða hópa með fjölbreyttar þarfir.
- Stuðningur og handleiðsla við fjölbreytta og árangursríkra kennsluhætti með sérstakri áherslu á snemmbæran stuðning
- Stuðningur og ráðgjöf við nýbreytni- og þróunarstarf, m.a. í samstarfi við stjórnendur.
- Kennslufræðilegar greiningar, athuganir og skimanir í leik- og grunnskólum.
- Þátttaka í samþættingu þjónustu í anda farsældarlaga og í þverfaglegu samstarfi skóla- og velferðarþjónustu.
- Gerð greinagerða eftir þörfum og fagleg miðlun upplýsinga.
- Að stuðla að uppbyggilegu, lausnamiðuðu og faglegu samráði milli skóla sveitarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara og farsæl kennslureynsla
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg
- Þekking á fjölbreyttum náms- og kennsluaðferðum
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og faglegri samvinnu er skilyrði
- Hæfni til að byggja upp traust, taka þátt í og leiða faglegt samstarf og vinna yfirvegað í krefjandi málum.
- Þjónustulund, góð dómgreind og geta til að taka við og gefa faglega endurgjöf
- Skipulagshæfni, sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta kostur
- Hreint sakavottorð
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við KÍ.
Umsókn skal skilað til Baldurs Inga Jónassonar, mannauðsstjóra, á baldurjo@isafjordur.is, ásamt ferilskrá, afritum af prófskírteinum og leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2026. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Gunnarsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs, í síma 450-8000 eða í gegnum hafdisgu@isafjordur.is.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-