29. janúar 2026
Störf í boði
Icelandair leitar að öflugum einstaklingi í fjölbreytilegt starf við hleðslu og afhleðslu flugvéla á Ísafjarðarflugvelli, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum fyrir sumarið 2026.
Mikil áhersla er lögð á þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum til að tryggja jákvæða upplifun farþega.
Hæfnikröfur:
- 18 ára lágmarksaldur
- Vinnuvéla réttindi æskileg
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Stundvísi
- Geta til þess að vinna undir álagi
- Hreint sakavottorð
Starfssvið:
- Störf á flughlaði við komur og brottfarir flugvéla
- Annast almenna starfsemi í flugstöð
- Upplýsingagjöf og þjónusta við viðskiptavini m.a. í gegnum síma
- Innritun farþega og farangurs og eftir tilvikum afgreiðsla á vörusendingum
- Bókanir og fullnaðarfrágangur á fyrirframgreiddri þjónustu
- Önnur þau störf sem yfirmaður kann að fela starfsmanni
Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2026. Áhugasamir sendi inn umsókn ásamt ferilskrá
Nánari upplýsingar veitir:
Þorlákur Ragnarsson, stöðvarstjóri, thorlakurr@icelandair.is