Eftir þriggja ára samstarf í fimm Evrópulöndum hefur MERSE-rannsóknarverkefnið kynnt nýjar tillögur að stefnumótun sem miða að því að bæta skilyrði fyrir samfélagsfyrirtæki í Norður-Evrópu.
Samfélagsfyrirtæki þróa hagnýtar lausnir við samfélagslegum áskorunum og leggja áherslu á að skapa samfélagslegt virði fremur en fjárhagslegan hagnað. Í dreifbýli gegna þau sífellt mikilvægara hlutverki – til dæmis með því að skapa störf fyrir fólk sem stendur utan vinnumarkaðar og styrkja staðbundna þjónustu.
Þrátt fyrir aukið vægi starfa mörg þessara fyrirtækja enn við óstöðug skilyrði, án langtímafjármögnunar eða skýrra ramma. Það takmarkar möguleika þeirra til að vaxa og hafa enn meiri áhrif á atvinnu, þjónustu og félagslega þátttöku í dreifbýli.
Tillögur MERSE byggja á víðtækri rannsóknarvinnu og samráði við frumkvöðla og stefnumótendur í Finnlandi, Írlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Þær sýna hvað þarf til að skapa stöðugra og raunhæfara rekstrarumhverfi fyrir samfélagsfyrirtæki.
Sýnileiki og áhrif á stefnumótun á Vestfjörðum
Aðkoma Vestfjarðastofu að verkefninu endurspeglar vel hvaða áhrif MERSE hefur haft í íslensku samhengi. Vestfjarðastofa hefur um árabil stutt frumkvöðlastarf, menningarverkefni og samfélagsdrifnar lausnir og verkefni sem í vaxandi mæli falla undir skilgreiningu samfélagsfyrirtækja.
Hjá Vestfjarðastofu voru þær Steinunn Ása Sigurðardóttir og Anna Sigríður Ólafsdóttir verkefnisstjórar MERSE og sáu um tengsl við samfélagsfrumkvöðla á Íslandi, héldu bæði stað og vefviðburði á Vestfjörðum og tóku á móti fulltrúum verkefnisins í tveimur Íslandsferðum. Einnig fóru þær Steinun og Annska í ferðir til Írlands og Noregs sem hluti af ferðalögunum.
Þátttaka í MERSE hefur hjálpað til við að setja skýrari orð og rök gagnvart þessari starfsemi og styrkt tengsl hennar við stefnumótun. Þekking úr verkefninu hefur þegar verið nýtt í samtali við stjórnvöld og aðra hagaðila til að varpa ljósi á skörun sem hefur verið í íslenskum stuðningskerfum.
Sú umræða hefur meðal annars vakið athygli á því að íslenskt styrkjakerfi hefur gjarnan lagt meiri áherslu á útflutningsdrifin og hraðvaxtarfyrirtæki, en minni áherslu á samfélagslegt virði og staðbundin áhrif. MERSE hefur þannig stutt við að samfélagsfyrirtæki séu nú skýrar tekin inn í svæðisbundnar tillögur og stefnu, og styrkt rök fyrir sveigjanlegri stuðningi og aukinni viðurkenningu á staðbundnum áhrifum.
Fimm lykilsvið umbóta
Tillögur MERSE beina sjónum að fimm lykilsviðum:
- Skýrari viðurkenning: Sameiginlegar skilgreiningar, betri gögn og aukin sýnileiki, ásamt mati á áhrifum stefnu á dreifbýli.
- Langtímafjármögnun: Þörf á fjölára fjármögnun og blönduðum lausnum í stað skammtímaverkefna.
- Opinber innkaup: Aukin notkun félagslegra viðmiða til að opna markað fyrir samfélagsfyrirtæki.
- Betri stuðningskerfi: Ráðgjöf og stuðningur sem tekur mið af samfélagsdrifnum rekstrarformum.
- Samstarf um þróun: Samfélagsfyrirtæki sem lykilaðilar í staðbundinni og svæðisbundinni þróun.
Vanmetin auðlind í dreifbýli
Niðurstöður verkefnisins benda til þess að samfélagsfyrirtæki séu enn vannýtt auðlind í þróun dreifbýlis. Með réttum stuðningi gætu þau styrkt atvinnulíf, aukið þátttöku og bætt aðgengi að þjónustu á svæðum þar sem aðrir aðilar ná síður til.
Alþjóðlegt samstarf og næstu skref
MERSE (Business Models Empowering Rural Social Entrepreneurship) er alþjóðlegt rannsóknar- og þróunarverkefni á vegum Interreg Northern Periphery and Arctic áætlunarinnar, sem stendur yfir frá 2023 til 2026. Verkefnið sameinar aðila frá fimm löndum með það markmið að styrkja stöðu samfélagsfyrirtækja í dreifbýli.
Næsta skref er að nýta tillögurnar í framkvæmd. Með hliðsjón af áskorunum á borð við fækkun íbúa, skort á vinnuafli og takmarkaða þjónustu í dreifbýli gætu samfélagsfyrirtæki orðið lykilþáttur í sjálfbærri þróun – ef rétt skilyrði eru fyrir hendi.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér á heimasíðu Vestfjarðastofu á meðfylgjandi tengli - https://www.vestfirdir.is/is/verkefni/atvinnuthroun-og-nyskopun/merse