Fara í efni

Hvernig geta samvinnufélög í dreifbýli stækkað án þess að glata sálinni?

Fréttir MERSE
Frá heimsókn MERSE-fólks til Finnlands þar sem m.a. var skoðað samfélagslega rekið hjúkrunarheimili
Frá heimsókn MERSE-fólks til Finnlands þar sem m.a. var skoðað samfélagslega rekið hjúkrunarheimili

Þann 11. febrúar fór fram vefnámskeið á vegum MERSE-verkefnisins undir yfirskriftinni Scaling up cooperation in Rural Areas. Alls tóku 45 þátttakendur þátt víðs vegar að úr Evrópu og var þar varpað fram einni kjarnaspurningu: Hvernig geta samvinnufélög vaxið án þess að fórna lýðræði, sjálfbærni og staðbundnu eignaraðild?

Þátttakendur komu frá Svíþjóð, Noregi, Írlandi, Finnlandi, Íslandi, Rúmeníu, Ítalíu og fleiri löndum. Hópurinn var fjölbreyttur; fræðafólk, fulltrúar sveitarfélaga, ráðgjafar í atvinnuráðgjöf og samvinnurekstri og frumkvöðlar í dreifbýli - góð blanda ólíkra aðila sem koma að byggðaþróun með einum eða öðrum hætti.

Áskoranir af sama meiði
Vefnámskeiðið var skipulagt af Pelle Persson og Susanne Vinderå frá Coompanion í samstarfi við Ruralia Institute.Taneli Vaskelainen frá Ruralia Institute kynnti rannsóknir sínar á seiglu og vexti samvinnufélaga, meðal annars með dæmum úr finnskum veruleika á borð við S-Group. Sagði hann niðurstöður sýna að samvinnufélög geta vaxið og orðið stór – en aðeins ef stjórnarhættir og tilgangur þeirra þróast samhliða aukinni veltu. Í umræðum var tekinn snúningur á þessu og var niðurstaðan að vöxtur mætti ekki kosta samfélagsreksturinn sálina.

Í umræðum komu fram sameiginlegar áskoranir sem mörg verkefni á sviði samfélagsreksturs í dreifbýli um alla Evrópu standa frammi fyrir:

  • Takmarkað aðgengi að fjármagni
  • Skortur á sérhæfðu starfsfólki
  • Regluverk sem er ekki sniðið að samvinnulíkönum
  • Opinber styrkjakerfi sem taka ekki nægjanlegt tillit til lýðræðislegrar eignaraðildar

Seigla mikilvægari en hraði
Þátttakendur voru líka á því að fjölmörg tækifæri væri líka að finna: endurnýjanleg orka, staðbundin matvæli, ferðaþjónusta, hringrásarhagkerfi og samfélagsþjónusta. Eitt af því sem stóð upp úr var að vöxtur í dreifbýli snýst síður um hraða og meira um seiglu. Vöxtur þarf að styrkja samfélagið – ekki ganga á það.

Dreifbýlissvæði eru oft skilgreind á jaðrinum. Umræðan á vefnámskeiðinu benti hins vegar til þess að dreifbýli Evrópu sé í fararbroddi þegar kemur að því að þróa sjálfbær, lýðræðisleg og samfélagslega inngildandi viðskiptamódel.

Það vakti sérstaka ánægju skipuleggjenda að finna fyrir endurnýjuðum áhuga yngra fræðafólks og frumkvöðla á lýðræðislegum rekstrarlíkönum. Á tímum efnahagslegrar óvissu og umhverfisógna eru samvinnufélög ekki ómur fjarlægrar fortíðar – heldur raunhæf verkfæri til að byggja upp seiglu.

Hér má lesa nánar um vefnámskeiðið á heimasíðu MERSE.