05. maí 2026
Störf í boði
Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf. óskar eftir að ráða geðgóðan bílstjóra sem er tilbúinn að vinna af kostgæfni þau störf, sem honum kunna að vera falin. Viðkomandi þarf að geta sinnt tilfallandi yfirvinnu / aukavinnu.
Verkefni og ábyrgð:
Akstur með hráefni, afurðir og aðföng sem og, umsjón og umhirða bifreiða. Aðstoðar útiverkstjóra við útskipanir, landanir og annað tilfallandi. Auk annarra tengdra starfa innan fyrirtækisins. Vinna þarf eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtækisins.
Menntunar – og hæfniskröfur:
- Meiraprófsréttindi og gilt ökuritakort. Æskilegt að viðkomandi sé með vinnuvélaréttindi.
- Að vera þjónustumiðaður, jákvæður og með góða samskiptahæfni. Jafnframt að geta unnið sjálfstætt, stundvís og áreiðanlegur.
- Hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar veitir Kristján G. Jóakimsson, gsm 893 1148.
Umsóknir sendist á netfangið ingibjorg@frosti.is fyrir 15. maí n.k.