Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Yfirmatráður á Bergi í Bolungarvík

Störf í boði

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða yfirmatráð í eldhúsið á Bergi hjúkrunarheimili í Bolungarvík. Um vaktavinnu er að ræða þar sem unnið er á vöktum frá 8-14 og aðra hverja helgi. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund. Á Bergi starfar samhentur og glaðlyndur hópur þar sem lögð er áhersla á samvinnu og fagmennsku. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf 1. júní en annars eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Matargerð í mötuneyti og gerð matseðla. Innkaup og umsjón með matarbirgðum. Verkstjórn aðstoðarstarfsfólks. Umsjón með þrifum, tækjum og búnaði í eldhúsi.

Hæfniskröfur

  • Reynsla sem matráður eða úr sambærilegu starfi.

  • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

  • Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 300 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.

Starfshlutfall er 60%

Umsóknarfrestur er til og með 04.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Svala Björk Einarsdóttir

Tölvupóstur: svala.einarsdottir@hvest.is

Auður Helga Ólafsdóttir

Tölvupóstur: audur.olafsdottir@hvest.is

Sækja um starf