Fara í efni

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða - Sérfræðingur í svæfingalækningum

Störf í boði

Við leitum að drífandi einstaklingi til að sinna starfi svæfingalæknis á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Um er að ræða 100% ótímabundið starf á spennandi vettvangi sem er bæði ábyrgðamikið og krefjandi.

Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða starfa um 300 manns sem veita almenna heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Heilsugæslustöðvar eru á Ísafirði og Patreksfirði og heilsugæslusel í öllum byggðakjörnum heilbrigðisumdæmisins. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef stofnunarinnar www.hvest.is.

Boðið er upp á aðstoð við öflun húsnæðis og flutningsstyrk

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfinu fylgir hefðbundin vinna við svæfingar, deyfingar við fæðingar, þjónusta við sjúklinga á bráðamóttöku eftir þörfum og önnur tilfallandi verkefni.

Almenn störf læknis á legudeild og heilsugæslu eftir þörfum.

Þátttaka í kennslu og þjálfun nema, sérnámslækna og annarra fagstétta ásamt gæða- og umbótavinnu

Möguleiki á ákveðnum gæða- og rannsóknarverkefnum í samvinnu við yfirlækni

Æskilegt er að umsækjandi sé reiðubúinn að taka þátt í læknisfræðilegri þjónustu við sjúkraflug

Önnur verkefni í samráði við yfirlækni

Hæfniskröfur

Fullgild réttindi í svæfingalækningum á Íslandi

Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið námskeiðum í sérhæfðri endurlífgun fullorðinna (ALS) og barna (EPLS/NLS)

Kostur væri að hafa lokið námskeiði í meðhöndlun fjöláverkasjúklinga svo sem European Trauma Course (ETC) eða Advanced Trauma Life Support (ATLS)

Krafa er gerð um íslensku- og/eða enskukunnáttu samsvarandi stigi C1 í samevrópska tungumálastaðlinum (CEFRL)

Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði

Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.

Stöðunefnd lækna metur umsækjendur skv. 36. gr. laga 40/2007, sjá einnig umfjöllun á vef Embættis landlæknis, starfsreglur nefndarinnar og verklagsreglur stöðunefndarinnar. Mikilvægt er því að umsókninni fylgi sérprent eða ljósrit af greinum sem umsækjandi hefur skrifað og birt. Þá er umsækjanda heimilt að senda inn meðmæli eða önnur gögn sem votta hvernig hann hefur staðið sig í starfi. Umsögn stöðunefndar byggist á innsendum gögnum. Stöðunefnd getur tekið sér sex vikur til að yfirfara innsendar umsóknir.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum, mati stöðunefndar lækna og umsögnum meðmælenda.

Utan vinnu eru lífsgæðin mikil. Tækifærin til útivistar eru allt um kring, enginn tími fer í ferðalög til og frá vinnu. Börnin eru eins og blóm í eggi í leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttastarfi, menntaskóla og jafnvel lýðskóla eða háskóla.

Fullt af spennandi atvinnutækifærum fyrir maka og margvísleg starfsemi sem krefst háskólamenntunar á svæðinu, sjá til dæmis laus störf á vef Ísafjarðarbæjar.

Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2026

Nánari upplýsingar veitir

Súsanna Björg Ástvaldsdóttir

Tölvupóstur: susannaba@hvest.is

Sími: 450 4500

Kristrún Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: kristrungudmunds@gmail.com

Sækja um starf