Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar að ráða kraftmikinn leiðtoga á hjúkrunarheimilið Berg í Bolungarvík. Um 70 til 90% starfshlutfall er að ræða með möguleika á bakvöktum á móti öðrum hjúkrunarfræðingum.
Aðstoðardeildarstjóri ber ábyrgð á mönnun, stjórnun og skipulagningu á daglegri starfsemi deildarinnar, í samvinnu við deildarstjóra.
Á Bergi eru 10 heimilismenn og einkennist starfsemin af góðum starfsanda, umhyggju og hlýju. Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 250 manns starfa á sjúkra-, heilsugæslu- og hjúkrunarsviði. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra.
-
Sinnir almennum hjúkrunarstörfum og ber ábyrgð á þeim.
-
Skipuleggur vinnuframlag og mönnun deildarinnar í samræmi við hugmyndafræði, stefnu og rekstur.
-
Skipuleggur vinnuskýrslur og heldur utanum skráningar í Vinnustund.
-
Ber ábyrgð á gerð RAI mats á heimilisfólki, fylgist með niðurstöðum gæðastaðla og kemur með tillögur að úrbótum.
Hæfniskröfur
-
Íslenskt hjúkrunarleyfi
-
Framhalds- eða sérmenntun sem nýtist í starfi er kostur
-
Sjálfstæði í starfi
-
Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Æskilegt er að nýr aðstoðardeildarstjóri geti hafið störf sem fyrst eftir áramót. Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar tekin hefur verið ákvörðun um ráðningu. Umsókn getur gilt í allt að 6 mánuði.
Starfshlutfall er 70-90%
Umsóknarfrestur er til og með 07.12.2026
Nánari upplýsingar veitir
Auður Helga Ólafsdóttir
Tölvupóstur: audur.olafsdottir@hvest.is
Hildur Elísabet Pétursdóttir
Tölvupóstur: hildurep@hvest.is