Fara í efni

Hafsjór af hugmyndum – Nýsköpunarkeppni og háskólaverkefni

Sítrónupressa fyrir rækju - fullvinnsla?
Sítrónupressa fyrir rækju - fullvinnsla?

Skilafrestur í Nýsköpunarkeppninni hefur verið fluttur fram til 15. júní 2020 og eru því bæði nýsköpunarkeppnin og háskólaverkefnið í „Hafsjó af hugmyndum“ með sama skilafrest. 

Það er því nógur tími til að sækja um og undirbúa spennandi nýsköpunarverkefni.  Strax eftir 15. júní munu sérfræðingar Nýsköpunarmiðstöðvar og Vestfjarðastofu eiga fund með öllum umsækjendum þar sem þeim gefst tækifæri til að útfæra umsóknirnar betur.  

Markmiðið með nýsköpunarkeppninni er að: 

  • Auka nýsköpun. 
  • Hvetja starfandi fyrirtæki, frumkvöðla og nema til nýsköpunar. 

  • Skapa ný og eftirsóknarverð störf í sjávarútvegi eða tengdum greinum.  

  • Auka virði og framlegð úr því hráefni sem berst í land á Vestfjörðum sem og ónýttum auðlindum. 

Við mat á verkefnum verða eftirfarandi þættir hafðir til hliðsjónar; nýnæmi, raunhæfni, arðsemi,  að verkefnin skapi ný störf tengd sjávarfangi á Vestfjörðum, aukin nýting sjávarauðlindarinnar, markaðsmál og staða hugmyndarinnar þ.e. hversu líklegt má teljast að hægt sé að hrinda hugmyndinni í framkvæmd. 

Markmiðið með háskólaverkefnunum er að:  

  • Hvetja til nýsköpunar.  

  • Skapa ný og eftirsóknarverð störf í sjávarútvegi eða tengdum greinum á Vestfjörðum.  

  • Afla þekkingar byggðum á vísindalegum grunni um sjávarbyggðir Vestfjarða. 

Í háskólaverkefnunum er opið fyrir masters- og doktorsnema að vinna að verkefnum í náttúru-, og tæknigreinum sem og í viðskipta – og félagsvísindum í tengslum við sjávarútveg. Það er því mjög breytt svið fræðigreina sem geta komið að þessum verkefnum. 

Til upprifjunar er hér kynningarmyndband um keppnina og fyrirtækin sem eru hluti af sjávarútvegsklasanum.  https://www.youtube.com/watch?v=Zk6dXgYxQy0 

Hvetjum alla til að sækja um en nú er tækifærið að fara á fullt í frumkvöðlastarf á Vestfjörðum. 

Allar nánri upplýsingar veitir Guðrún Anna Finnbogadóttir í netfanginu: gudrunanna@vestfirdir.is