Fara í efni

Háafell - Starfsfólk í sjóeldisdeild

Störf í boði

Háafell ehf óskar eftir að ráða starfsmenn í sjóeldisdeild fyrirtækisins í Ísafjarðardjúpi með starfstöð í Súðavík. Um er að ræða bæði sumarstörf og framtíðarstörf.
Unnið er í vaktarvinnu í 7 daga og svo 7 daga í fríi. Starfsmaður þarf að geta sinnt tilfallandi yfirvinnu á sinni vakt.

Verkefni og ábyrgð:
► Daglegt eftirlit með sjókvíum
► Dagleg umhirða sjókvía
► Skoðun og viðhald á búnaði
► Skýrslugerðir

Helstu kröfur:
► Menntun og/eða reynsla á sviði fiskeldis er mikill kostur
► Skipstjórnar og vélstjórnarréttindi eru kostur
► Ökuréttindi og vinnuvélaréttindi eru kostur
► Samviskusemi, áreiðanleiki og stundvísi
► Frumkvæði, drifkraftur og hæfni til að vinna í teymi

Frekari upplýsingar veitir:
Jón Egill Guðmundsson svæðisstjóri jeg@hfell.is sími 776 7798

Umsóknir sendist fyrir 25. apríl á netfangið asa@hfell.is

Háafell er laxeldisfyrirtæki við Ísafjarðardjúp en starfsemin er í þremur sveitarfélögum við Djúp; seiðaeldisstöð á Nauteyri í Strandabyggð, þjónustumiðstöð við sjókvíar er í Súðavík og skrifstofur á Ísafirði. Háfell hefur leyfi fyrir 6.800 tonna lífmassa á fjórum árgangsvæðum. Hjá Háafell er lögð rík áhersla á sátt við náttúru og samfélag með velferð fiskanna að leiðarljósi.