Við Grunnskólann á Ísafirði er auglýst laust til umsóknar 100% starf skólaritara. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst. Í Grunnskólanum á Ísafirði vinna um 80 starfsmenn. Leitað er að jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund sem er tilbúinn til að taka þátt í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í lifandi starfsumhverfi. Skólaritari starfar undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra.
Helstu verkefni
- Að sjá um daglega afgreiðslu, nemendaskráningu, símaþjónustu, upplýsingagjöf til nemenda, starfsmanna og gesta, póstafgreiðslu og móttöku gesta
- Umsjón með skjalavistun skólans og afgreiðsla upplýsinga
- Ábyrgð og eftirlit með ýmsum gögnum s.s. námsmöppum nemenda og öðrum gögnum er heyra undir persónuvernd og skjalavörslu
- Umsjón með skrifstofuvörum skólans (innkaup, pöntun, móttaka, birgðahald, afgreiðsla)
- Peningaumsýsla í samráði við stjórnendur
- Að annast ýmsa úthringivinnu og bréfaskriftir í samráði við stjórnendur
- Skipulagning forfallakennslu í samráði við stjórnendur
- Innkaup á ýmsum vörum í samvinnu við stjórendur
- Aðstoð og eftirfylgni vegna kannana sem lagðar eru fyrir í skólanum
- Að uppfæra fréttir, tilkynningar o.fl. á heimasíðu skólans í samráði við umsjónarmann heimasíðu og skólastjórnendur
Hæfniskröfur
- Gerð er krafa um stúdentspróf
- Viðbótarnám sem nýtist í starfi, s.s. diplóma eða styttri námsbrautir
- Þekking á reglum um persónuvernd
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í samskiptum nauðsynleg
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Mjög góð almenn tölvukunnátta, s.s. í ritvinnslu, Excel, Outlook og skjalaumsýslu
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2026. Umsóknir skulu sendar til Guðbjargar Höllu Magnadóttur, skólastjóra á netfangið gudbjorgma@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Halla, í síma 450-8305 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
-Við þjónum með gleði til gagns-