Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar starf matartæknis/matreiðslumanns í mötuneyti skólans. Um er að ræða 100% starf frá 17. ágúst 2026. Næsti yfirmaður er skólastjóri.
Matartæknir/matreiðslumaður hefur yfirumsjón með eldhúsi, sér um matseld (heitan mat) og bakstur, skipuleggur matseðla allt að mánuð fram í tímann og annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum. Hann hefur jafnframt umsjón með þrifum í eldhúsi og er verkstjóri aðstoðarfólks í mötuneytinu. Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 400 nemendur. Um þessar mundir er hann í innleiðingu á verkefninu heilsueflandi grunnskóli.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Matreiðsla morgun–, hádegismats og nónhressingar
- Gerð matseðla í samráði við skólastjóra og næringarfræðing
- Hugar vel að hollustu og samsetningu matar í samráði við ráðleggingar frá Lýðheilsustöð og næringarfræðingi
- Innkaup á matvælum og hreinlætisvörum
- Hefur umsjón með því að tæki og búnaður í eldhúsi starfi eðlilega og lætur umsjónarmann skóla vita ef viðgerða/lagfæringa er þörf
- Innkaup á eldhúsáhöldum í samráði við skólastjóra
- Útbýr sérfæði fyrir einstaklinga sem þess þurfa
Hæfniskröfur:
- Matreiðslu- eða matartæknimenntun og/eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af störfum í mötuneyti æskileg
- Þekking á gerð matseðla og samsetningu fæðis samkvæmt viðmiðum Manneldisráðs
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á að vinna á líflegum og skemmtilegum vinnustað
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Rík þjónustulund og sveigjanleiki
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við Kjöl/VerkVest.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2026. Umsóknir skulu sendar til Guðbjargar Höllu Magnadóttur, skólastjóra, á netfangið gudbjorgma@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og afrit af prófskírteinum.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Halla í síma 450-8300 eða í gegnum fyrrgreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um störfin. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-