Fara í efni

Grunnskólinn á Ísafirði - Aðstoðarskólastjóri

Störf í boði

Ísafjarðarbær auglýsir starf aðstoðarskólastjóra Grunnskólans á Ísafirði laust til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum, öflugum og framsýnum einstaklingi til að aðstoða skólastjóra við þróttmikið skólastarf. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er gert ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026. Aðstoðarskólastjóri er einn af fimm stjórnendum skólans og er skólastjóri næsti yfirmaður hans.

Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 400 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og innleitt kennsluaðferðir leiðsagnarnáms. Skólinn er í góðu og öflugu samstarfi við íþróttahreyfinguna og listaskóla bæjarins en á Ísafirði er fjölbreytt samfélag þar sem hreyfing og menning skipa stóran sess.

Helstu verkefni:

  • Sinna faglegri forystu innan skólans ásamt skólastjóra
  • Vera staðgengill skólastjóra í forföllum hans
  • Hafa umsjón með daglegri starfsemi skólans í samstarfi við skólastjóra
  • Veita markvissa kennslufræðilega leiðsögn og endurgjöf til starfsmanna
  • Annast skipulagningu forfalla og skráningu þeirra
  • Sjá um gerð stundaskrár í samráði við skólastjóra
  • Umsjón með innra mati skólans í samráði við skólastjóra

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Grunnskólakennaramenntun skilyrði
  • Meistarapróf í uppeldis- og menntunarfræðum og/eða stjórnun menntastofnana
  • Stjórnunarreynsla í grunnskóla æskileg
  • Hæfni til að skipuleggja faglegt starf og veita því forystu
  • Framúrskarandi færni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og framsýni í skólamálum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Jákvæðni, sveigjanleiki, ábyrgðarkennd og áreiðanleiki
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að miðla upplýsingum bæði í mæltu máli og rituðu

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands.

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2026. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt afriti af leyfisbréfi til kennslu og prófskírteinum. Umsókn skal skila til mannauðsstjóra Ísafjarðarbæjar á netfangið baldurjo@isafjordur.is. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Allar nánari upplýsingar gefur Guðbjörg Halla Magnadóttir, skólastjóri Grunnskólans á Ísafirði, í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst á netfangið gudbjorgma@isafjordur.is.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-