Fara í efni

Grunnskóli Önundarfjarðar - Frístundaleiðbeinandi í dægradvöl.

Störf í boði

Grunnskóli Önundarfjarðar auglýsir laust til umsóknar fjölbreytt starf frístundaleiðbeinanda. Um er að ræða 35% starf frá 24. ágúst 2026 – 3. júní 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.

Viðkomandi sinnir frístundarstarfi fyrir 6-9 ára börn að loknum skóladegi og er starfið mjög líflegt og gefandi.  Óskað er eftir jákvæðri og drífandi manneskju sem getur unnið sjálfstætt og er með gott frumkvæði. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi
  • Leiðbeinir börnum í leik og námi
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla og aðra sem koma að dægradvöl

 

 Hæfniskröfur:

  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Reynsla sem nýtist í starfi
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
  • Gott frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslenskukunnátta er æskileg

 

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við VerkVest / Kjöl.

Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað til Jónu Láru Sveinbjörnsdóttur skólastjóra á netfangið jonasv@isafjordur.is. 

Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar veitir Jóna í síma 450-8365 eða í gegnum fyrrgreindan tölvupóst.

Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

-Við þjónum með gleði til gagns-