Áætlað er að í haust 2019 verði aftur í boði aftur í boði fyrir stofnanir á vegum sveitarfélaganna að fara í úttekt fyrir Grænu skrefin. Í dag eru 26 stofnanir skráðar og eru flestar á byrjunarskrefi sem þýðir að þau hafi ekki farið í úttekt. Úttektaraðili fór í úttekt í maí 2019 og kláruðu þá þrjár stofnanir fyrsta skrefið og eru þær því að vinna að því að ná öðru skrefi. Þessar stofnanir eru Patreksskóli, Héraðsbókasafn V- Barðastrandasýslu og Leikskólinn í Tjarnabæ en allar þessar stofnanir eru staðsettar á Patreksfirði.
Grænu skrefin er fjögurra skrefa umhverfisverkefni sem með einföldum og skipulögðum hætti auðveldar innleiðingu umhverfisvænna aðgerða. Grænu skrefin byggjast á aðgerðum er snerta sex rekstrarþætti sem hafa áhrif á umhverfið og snýst það um að efla vistvænan rekstur í starfsemi sveitarfélaganna ásamt því að skapa fordæmi í því að minnka umhverfisáhrif með kerfisbundnum hætti.
Hægt er að skrá sig í Grænu skrefin á síðu verkefnisins hér og einnig er hægt að skrá sig í úttekt á síðunni hér
Fyrir neðan er listi yfir þær stofnanir sem eru skráðar í verkefnið.
| 
 Vinnustaður  | 
 Sveitarfélag  | 
 Skref  | 
| 
 Áhaldahús Patró  | 
 Vesturbyggð  | 
 Byrjun  | 
| 
 Bíldudalsskóli  | 
 Vesturbyggð  | 
 Byrjun  | 
| 
 Brattahlíð sundlaug  | 
 Vesturbyggð  | 
 Byrjun  | 
| 
 Bæjarskrifstofur Ísafjarðarbæjar  | 
 Ísafjarðarbær  | 
 Byrjun  | 
| 
 Eyrarsel  | 
 Vesturbyggð  | 
 Byrjun  | 
| 
 Félagsheimilið á Hólmavík  | 
 Hólmavík  | 
 Byrjun  | 
| 
 Grunnskólinn á Ísafirði  | 
 Ísafjarðarbær  | 
 Byrjun  | 
| 
 Grunnskólinn á Hólmavík  | 
 Hólmavík  | 
 Byrjun  | 
| 
 Grunnskólinn á Þingeyri  | 
 Ísafjarðarbær  | 
 Byrjun  | 
| 
 Grunnskólinn á Suðureyri  | 
 Ísafjarðarbær  | 
 Byrjun  | 
| 
 Hvesta hæfingastöð  | 
 Ísafjarðarbær  | 
 Byrjun  | 
| 
 Heilsuleikskólinn Laufás  | 
 Ísafjarðarbær  | 
 Byrjun  | 
| 
 Héraðsbókasafn V-Barðarstrandasýslu  | 
 Vesturbyggð  | 
 Fyrsta skrefi lokið  | 
| 
 Héraðsbókasafn Strandasýslu  | 
 Hólmavík  | 
 Byrjun  | 
| 
 Félagsheimilið Birkimelur  | 
 Vesturbyggð  | 
 Byrjun  | 
| 
 Íþróttamiðstöðin á Þingeyri  | 
 Ísafjarðarbær  | 
 Byrjun  | 
| 
 Leikskólinn Araklettur  | 
 Vesturbyggð  | 
 Byrjun  | 
| 
 Leikskólinn Lækjarbrekka  | 
 Hólmavík  | 
 Byrjun  | 
| 
 Leikskólinn Tjarnarbrekka  | 
 Vesturbyggð  | 
 Fyrsta skrefi lokið  | 
| 
 Patreksskóli  | 
 Vesturbyggð  | 
 Fyrsta skrefi lokið  | 
| 
 Rannsóknarsetur HÍ á Ströndum  | 
 Hólmavík  | 
 Byrjun  | 
| 
 Safnahúsið  | 
 Ísafjarðarbær  | 
 Byrjun  | 
| 
 Skrifstofa Reykhólahrepps  | 
 Reykhólahrepp  | 
 Byrjun  | 
| 
 Skrifstofa Strandabyggðar  | 
 Hólmavík  | 
 Byrjun  | 
| 
 Skrifstofa Vesturbyggðar  | 
 Vesturbyggð  | 
 Byrjun  | 
| 
 Suðureyrarhöfn  | 
 Suðureyri  | 
 Byrjun  |