Fara í efni

Gott aðgengi - kynningarfundur

Fréttir

Ferðamálastofa býður upp á kynningu á verkefninu Gott aðgengi . Kynningin fer fram á Teams. Gott aðgengi er fræðslu- og hvatningarverkefni sem hlaut hvatningarverðlaun ÖBÍ 2022.

Fyrirtæki sem skrá sig á kynninguna fá leiðbeiningar um verkefnið, hvernig hægt er að bæta aðgengi fyrir fatlaða með markvissum hætti og hvað þarf að gera. Fyrirtæki sem eru að fara í framkvæmdir eða stækkun á húsnæði eru sérstaklega hvött til að skrá sig á kynninguna hér.

Skoða á viðburðardagatali