06. maí 2026
Fréttir
Stjörnu-Sævar, Markaðsstofa Vestfjarða og Ísafjarðarbær bjóða íbúum á fræðslufund um almyrkva sólu
Föstudaginn 8. maí kl. 18:00–19:00 verður haldinn opinn fræðslufundur í Bryggjusalnum í Edinborgarhúsinu fyrir íbúa á Vestfjörðum um almyrkva sólu sem verður sýnilegur á 12. ágúst 2026.
Á fundinum mun Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu Sævar fjalla um þetta einstaka náttúrufyrirbæri, hvað gerist þegar almyrkvi verður, hvernig best er að fylgjast með honum á öruggan hátt og hvað íbúar þurfa að hafa í huga.
Fundurinn er gott tækifæri fyrir íbúa til að fræðast, spyrja spurninga og undirbúa sig fyrir þennan einstaka atburð.
Öll Velkomin