Fara í efni

Forsætisráðherra hittir verkefnisstjóra Brothættra byggða á Ströndum

Fréttir Áfram Árneshreppur! Sterkar Strandir
F.v. Skúli Gautason, Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Líndal
F.v. Skúli Gautason, Katrín Jakobsdóttir, Sigurður Líndal

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra kom í heimsókn til Hólmavíkur og hitti m.a. verkefnisstjóra byggðarlaganna tveggja á Ströndum sem eru í Brothættum byggðum, Strandabyggðar og Árneshrepps, en verkefnin heita Sterkar Strandir og Áfram Árneshreppur. 

Fundurinn var sérlega vel heppnaður og var ráðherra mjög vel inni í málum og áhugasöm um framgang þeirra.  Í málefnum Árneshrepps var lögð áhersla á innviðauppbyggingu sem hefur ekki fylgt taktinum annarsstaðar á landinu, einkum hvað varðar samgöngumál og þrífösun. Raunar er Árneshreppur eina sveitarfélagið á landinu sem býr við þá einangrun að ekki sé sinnt snjómokstri í þrjá mánuði á ári hverju.

Í Strandabyggð var lögð megináhersla á fjölgun starfa og aukningu í fjölbreytileika þeirra.  

Að lokum var ítrekað við forsætisráðherra að verkefnið Brothættar byggðir í heild sinni þyrfti að vinnast þvert á ráðuneyti þar sem byggðamál snerta málaflokka allra ráðuneyta. 

Fundurinn í heild var afar vel heppnaður og standa vonir til að hann skili árangri.