Samheldni, frumkvæði og trú á framtíðina einkenndu árlegan íbúafund byggðaþróunarverkefnisins Fjársjóðs fjalla og fjarða, sem haldinn var fimmtudaginn 15. október í bókasafni grunnskólans á Reykhólum. Þetta var annar íbúafundurinn undir merkjum verkefnisins og fór mæting fram úr björtustu vonum aðstandenda. Íbúar tóku virkan þátt í samtali um stöðu verkefnisins, árangur og tækifæri til frekari uppbyggingar samfélagsins.
Ný forysta og öflugur liðsauki
Hrefna Jónsdóttir, fulltrúi íbúa og nýr formaður verkefnisstjórnar, setti fundinn. Hún bauð Guðmund Konráðsson, nýjan verkefnisstjóra, velkominn til starfa og þakkaði Emblu Dögg Bachmann fyrir gott starf á fyrsta ári verkefnisins. Kjartan Þór Ragnarsson sveitarstjóri lýsti ánægju með framvinduna og bjartsýni á framhaldið.
Nýlega tók Hlynur Einarsson, framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar, sæti Vésteins í verkefnisstjórn. Hlynur hefur yfir tuttugu ára reynslu af rekstri, framleiðslu og tæknilegri stjórnun og er mikilvægur liðsauki. Vésteini eru færðar þakkir fyrir framlag hans.
Auk Hrefnu og Hlyns sitja í verkefnisstjórn Guðlaug Guðmunda I. Bergsveinsdóttir, fulltrúi íbúa, Kristján Þ. Halldórsson, Helga Harðardóttir og Heba Guðmundsdóttir frá Byggðastofnun og Aðalsteinn Óskarsson frá Vestfjarðastofu.
Verkefnisstjórn ásamt verkefnastjóra. Mynd: Kristján Þ. Halldórsson
Frumkvæði íbúa skilar árangri
Guðmundur verkefnisstjóri, sem hóf störf síðsumars, fór yfir stöðu verkefnisins og þau fjölbreyttu frumkvæðisverkefni sem unnið er að. Hann hvatti íbúa til samstöðu og áframhaldandi þátttöku í eflingu samfélagsins.
Tvö verkefni voru kynnt sérstaklega. Guðjón Dalkvist Guðjónsson sagði frá samstarfi um hönnun og uppsetningu fuglaskilta á Reykhólum og Herdís Erna Matthíasdóttir kynnti uppbyggingu aðstöðu fyrir sjósund. Kynningarnar sýndu hvernig hugmyndir íbúa geta orðið að áþreifanlegum verkefnum sem auðga mannlíf og bæta aðstöðu í byggðarlaginu.
Stuðningur við næstu skref
Kristján Þ. Halldórsson kynnti umgjörð Frumkvæðissjóðs Fjársjóðs fjalla og fjarða, en tvær úthlutanir hafa farið fram. Styrkþegar voru hvattir til að ljúka verkefnum og skila lokaskýrslum. Verkefnisstjóri býður aðstoð við þá vinnu.
Stefnt er að nýrri úthlutun snemma á næsta ári, en tímasetning ræðst af framvindu þeirra verkefna sem þegar hafa fengið stuðning.
Aðalsteinn Óskarsson vakti jafnframt athygli á Uppbyggingarsjóði og hvatti íbúa til að nýta stuðningsmöguleika til að hrinda hugmyndum í framkvæmd. Hann minnti á að starfsfólk Vestfjarðastofu veitir aðstoð við umsóknargerð.
Hugmyndir íbúa móta framhaldið
Eftir kvöldverð í boði sveitarfélagsins tóku við líflegar hópumræður. Íbúar rýndu meginmarkmið og komu fram með breytingartillögur og ábendingar.
Afrakstur umræðnanna verður tekinn saman og ræddur í verkefnisstjórn. Þannig verður framlag íbúa hluti af áframhaldandi mótun verkefnisins og forgangsröðun næstu skrefa. Áhuginn og þátttakan á fundinum sýndu skýrt hvert samfélagið vill stefna.

Hrefna Jónsdóttir, fulltrúi íbúa og nýr formaður verkefnisstjórnar ræðir við íbúa
Fjölbreytt uppbygging í heimabyggð
Fyrr um daginn heimsóttu fulltrúar verkefnisstjórnar nokkra styrkþega. Í Handverksmarkaðnum ASSA á Króksfjarðarnesi sagði Sveinn Ragnarsson frá endurbótum á eldhúsinu og kaupum á nýjum búnaði. Því verkefni er nú að ljúka. Í Djúpadal sögðu Leifur Samúelsson og Guðrún Samúelsdóttir frá stækkun gistirýmis og bættri aðstöðu fyrir ferðaþjónustu.
Á Reykhólum veitti Rebekka Eiríksdóttir leiðsögn um Báta- og hlunnindasýninguna og Lovísa Ósk Jónsdóttir tók á móti hópnum í Búðinni og kynnti ljósmyndasýninguna Augnablik í Reykhólahreppi.
Heimsóknirnar og íbúafundurinn drógu fram fjölbreytni verkefnanna og þann dýrmæta fjársjóð sem felst í hugmyndum, framtaki og samheldni íbúa. Aðstandendur þakka öllum sem lögðu sitt af mörkum fyrir fróðlegan dag, hlýjar móttökur og uppbyggilegt samtal.